1
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

2
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

3
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir að losa þig við úr geymslunni

4
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

5
Innlent

Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu

6
Fólk

Selja höll í Garðabæ með þreföldum bílskúr

7
Innlent

Íslandsferð Hönnuh tók óvænta stefnu þegar hún var handtekin

8
Heimur

Borgaði 30 dali fyrir málverk sem reyndist gullnáma

9
Innlent

Reyndi að lauma sér til Íslands með fölsuðu skilríki

10
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Til baka

Salma Hayek fagnar sextugsafmælinu með nektarmyndum

Sextug og sexý

Selma Heyak
Salma Hayek nakin í sjónum á stórafmælinu
Mynd: Instagram/Selma Heyak

Leikkonan Salma Hayek fagnaði stórafmæli á dögunum þegar hún gekk í raðir sextugra. Í tilefni dagsins deildi hún djarfri nektarmynd á Instagram þar sem hún syndir nakin í sjónum og skrifaði einfaldlega: „60 og þakklát.“ Myndirnar vöktu gríðarlega athygli og rigndi hamingjuóskum yfir stjörnuna frá aðdáendum og samstarfsfólki í Hollywood, þar á meðal frá París Hilton, Lindsay Lohan og Vanessu Hudgens.

Hayek, sem var ein helsta kyntákn tíunda áratugarins eftir leik sinn í myndum á borð við Dogma og From Dusk Till Dawn, þykir halda ótrúlegum æskuljóma. Hún prýddi meðal annars forsíðu sundfatablaðsins Sports Illustrated á síðasta ári.

Margir velta fyrir sér hvernig leikkonunni tekst að halda velli og hefur hún verið einstaklega opin með sínar aðferðir í gegnum árin. Hér eru helstu leyndarmálin á bak við útlit og heilsu stjörnunnar:

Hafnar Botoxi en treystir á tæknina


Þegar kemur að andlitslyftingum og húðvörum fer Hayek óhefðbundnar leiðir miðað við margar stjörnur í Hollywood. Hún fullyrðir að hún noti hvorki Botox, fylliefni né öflugar húðflögunaraðferðir (chemical peels). Þess í stað treystir hún á nútímatækni og notar reglulega útvarpsbylgju- og örtíðnitæki til þess að stinna húðina og draga úr hrukkum.

Þá dásamar hún náttúrulega mexíkóska barkarþykknið Tepezcohuite. Þetta efni er jafnan notað í heimalandi hennar til að meðhöndla brunasár en Hayek fullyrðir að það endurnýi húðina með ótrúlegum hætti.

Enginn tími fyrir ræktina – Dansar á hlaupabrettinu


Hayek viðurkennir fúslega að hún hafi ekki agann í að mæta í ræktina á hverjum morgni, enda vinnudagarnir oft allt að tuttugu tímar. Leyndarmál hennar liggur í líkamsstöðunni. Hún vinnur með sérfræðingi í London sem kenndi henni að halda líkamanum þannig að vöðvarnir séu virkir allan daginn – jafnvel á meðan hún burstar tennurnar.

Hún stundar einnig svokallað endurheimtandi jóga (restorative yoga) þar sem áherslan er á að tóna vöðvana án þess að spenna þá. Þegar hún notar hlaupabretti fer hún heldur ekki hefðbundnar leiðir; í stað þess að hlaupa kýs hún að dansa á brettinu.

Nudd er leynivopnið og engir megrunarkúrar


Til að halda vöðvunum stinnum og heilbrigðum treystir Hayek blindandi á nudd. Leynivopnið hennar er nuddari sem býr í Japan en heimsækir London reglulega. Hayek segir að nuddið súrefnisvæði húðina, örvi blóðrásina og vinni kraftaverk á sogæfakerfi andlitsins.

Að lokum segist leikkonan ekki neita sér um neitt þegar kemur að mat. „Ég er ekki hrifin af megrunarkúrum og ég er hreinlega ekkert góð í þeim,“ segir afmælisbarnið hressa að lokum.

Selma Heyak
Mynd: Instagram/Selma Heyak
Selma Heyak
Mynd: Instagram/Selma Heyak
Selma Heyak
Mynd: Instagram/Selma Heyak
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið
Innlent

Dópakstur og hraðakstur héldu lögreglu við efnið

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu
Myndband
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu
Myndir
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Var í kjölfarið handtekinn
Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf
Heimur

Sjúkraflugvél á leið til Boston hvarf

Átta ára japönsk barnastjarna látin
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti
Heimur

Þrír nemendur ákærðir fyrir að hóta Trump lífláti

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi
Heimur

Blóðug ráðgáta í breskum sendibíl í Frakklandi

Loka auglýsingu