Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Settu upp stafræna „vörulista“ með úkraínskum börnum til þvingaðra ættleiðinga

Glata úkraínskri sjálfs­mynd sinni á valdi Rússa

„Því lengur sem þau dvelja þar, þeim mun meiri hætta“
„Því lengur sem þau dvelja þar, þeim mun meiri hætta“ Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Unsplash/Nadin Nandin

Evrópu­sambandið undirbýr nú nýjar refsiaðgerðir gegn 27 rússneskum einstaklingum og lögaðilum sem bera ábyrgð á ólöglegum brott­flutningi og ráni á úkraínskum börnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Bring Kids Back UA, en fulltrúar þeirra fagna þessum aðgerðum og krefjast þess að hinir seku verði saksóttir fyrir stríðs­glæpi.

Maksym Maksymov, yfirmaður samtak­anna, varar við því að þúsundir úkraínskra barna séu enn á valdi Rússa. „Börn sem áfram eru undir rússneskri stjórn standa frammi fyrir stöðugri hættu á innrætingu, hervæðingu og eyðingu úkraínskrar sjálfs­myndar sinnar. Því lengur sem þau dvelja þar, þeim mun meiri verður hættan,“ segir Maksymov í samtali við Euronews. Heildar­listi yfir þá sem styðja beint við stríðs­rekstur Rússa telur nú um 1.600 einstaklinga og lögaðila, sem sýnir breytta áherslu ESB í átt að mark­vissari refsiaðgerðum.

Óvissa um raunverulegan fjölda barna

Opinberar tölur úkraínskra stjórn­valda staðfesta að rúmlega 20.500 börn hafi verið flutt með valdi til Rússlands, en raun­veruleg umsvif eru talin mun meiri. Rannsóknar­stofa Yale-háskóla í mannúðar­málum (Yale’s Humanitarian Research Lab) áætlar að talan sé nær 35.000, á meðan stjórn­völd í Moskvu hafa sjálf gefið í skyn að allt að 700.000 börn hafi verið flutt yfir landa­mærin. Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) bendir á að nánast ómögulegt sé að staðfesta endanlegan fjölda.

Áður hefur verið greint frá því að rússnesk lepp­yfirvöld á hernumdum svæðum hafi sett upp stafræna „vörulista“ þar sem hægt var að sía úkraínsk börn eftir aldri, kyni, augnlit og hárslit, auk persónu­eiginleika á borð við „hlýðni“, í þeim tilgangi að koma þeim í þvingaða ættleiðingu.

Flókið ferli að fá börnin heim

Sameinuðu þjóðirnar hafa þegar lýst því yfir að brottnám og flutningur barnanna jafngildi stríðs­glæpum og glæpum gegn mann­kyninu. Að endur­heimta hvert og eitt barn getur tekið mörg ár og krefst flókinnar alþjóðlegrar samvinnu. Nánast öll mál þar sem börnum hefur verið skilað hafa farið fram með milli­göngu þriðju ríkja, einkum Katar, Suður-Afríku og Vatíkansins.

Undir­búningur refsiaðgerð­anna fer fram á sama tíma og ríki og alþjóð­legir samstarfs­aðilar safnast saman á ráðstefnu alþjóða­banda­lagsins fyrir skil úkraínskra barna (International Coalition for the Return of Ukrainian Children) í Toronto í Kanada, þar sem leitað verður frekari leiða til að tryggja örugga heimkomu barnanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs