1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Konan er fundin

4
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

5
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

6
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

7
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

8
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

9
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

10
Innlent

Bylting við flugstöðina

Til baka

Sigurður Guðmundsson er fallinn frá

Kerti
Mynd: Mynd: Shutterstock

Lögmaðurinn og bóndinn í Flekkudal í Kjós, Sigurður Guðmundsson, lést 10. mars eftir erfið veikindi á Landspítalanum, 67 ára að aldri. Mbl.is segir frá andlátinu.

Sigurður fæddist 10. maí árið 1957 í Reykjavík en foreldar hans voru hjónin Guðmundur Jónsson vélfræðingur, fæddur 27.4. 1932, dáinn 3.2. 2025, og Jóna Gróa Sigurðardóttir, fædd 18.03. 1936, dáin 17.9. 2015, fyrrverandi borgarfulltrúi Reykjavíkurborgar.

Fyrst gekk Sigurður í Laugalækjarskóla, síðan í Réttarholtsskóla, Verzlunarskóla Íslands og lauk svo námi í lögfræði við Háskóla Íslands.

Með námi starfaði Sigurður við ýmislegt, meðal annars hjá Tollvörugeymslunni og sem blaðamaður á Mogganum. Mestan part ævinnar starfaði hann sem sjálfstætt starfandi lögmaður og bóndi í Flekkudal í Kjós en þar sinnti hann hestaræktun og geita- og kindabúskap ásamt sambýliskonu sinni Guðnýju G. Ívarsdóttur, viðskiptafræðingi og fyrrum sveitarstjóra Kjósahrepps og bónda í Flekkudal.

Samkvæmt mbl.is hafa bæði Guðný og Sigurður lagt sitt af mörkum til samfélagsins í Kjós, í gegnum félagsstöf, lögmennsku, sveitarstjórn og með því að stunda hrossarækt með árangri sem tekið var eftir. Þá tók Sigurður að sér ýmis ábyrgðarhlutverk en hann var meðal annars formaður hestamannafélagsins Adams í Kjós í nokkur ár. Einnig var hann í stjórn hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ og sinnti nefndarstörfum fyrir Landssamband hestamanna. Aukreitis var hann um tíma í Framtalsnefnd Reykjavíkurborgar.

Sigurður átti börnin Ísak, fæddur 1984 og Aldísi Gróu, fædd 1992, með Lovísu Geirsdóttur leikskólakennara. Guðný átti son úr fyrra sambandi en það er Jóhannes Björnsson, fæddur 1979. Saman eiga þau Sigurður og Guðný níu barnabörn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

„Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði“
Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Loka auglýsingu