1
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

2
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

3
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

6
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

7
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

8
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

9
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

10
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

Til baka

Skemmdarvargar réðust á minnisvarða um Charlie Kirk

„Þau héldu að byssukúla myndi þagga niður rödd eiginmanns míns en hún gerði hana aðeins háværari“

Donald Trump og Charlie Kirk
Donald Trump og Charlie Kirk
Mynd: JOSH EDELSON / AFP

Stytta af bandaríska öfgahægri aðgerðasinnanum Charlie Kirk, sem stendur fyrir utan höfuðstöðvar Turning Point USA, var skemmd með rauðri málningu aðfaranótt sunnudags.

Á ljósmyndum sem samtökin birtu má sjá rauða málningu yfir andliti og hálsi styttunnar auk þess sem fýlusvipur hafði verið málaður framan á hana.

Turning Point USA, samtök sem Kirk stofnaði og urðu ein áhrifamestu samtök bandarískra hægri manna, segjast nú fara yfir upptökur úr öryggismyndavélum og vinna með lögreglu að því að bera kennsl á þá sem stóðu að skemmdarverkunum.

Samtökin segjast ætla að gera við styttuna og endurnýja skiltin sem voru skemmd. Í yfirlýsingu þeirra voru skemmdarverkin kölluð „djöfulleg“ og sagt að hið illa sofi aldrei.

Erika Kirk, ekkja Charlie Kirk, brást einnig við skemmdarverkunum og sagði þau ekki munu hafa tilætluð áhrif. Hún sagði eiginmann sinn ávallt hafa lagt áherslu á að byggja meira upp þegar aðrir reyndu að rífa niður.

„Þau héldu að byssukúla myndi þagga niður rödd eiginmanns míns en hún gerði hana aðeins háværari,“ skrifaði Erika. Sagði hún rauðu málninguna sömuleiðis aðeins verða til þess að arfleifð hans næði til fleiri.

Charlie Kirk var skotinn til bana árið 2025. Hann var áberandi og umdeildur öfgahægri maður í bandarískum stjórnmálum og stofnandi Turning Point USA. Eftir dauða hans hafa stuðningsmenn hans víða um Bandaríkin komið upp minningarreitum og staðið fyrir viðburðum honum til heiðurs.

Charlie Kirk stytta
Mynd: Turning Point
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna
Fólk

Nabblinn leggur bleyjuna á hilluna

Andri Már kveður leikskólann Baug eftir tæplega átta ár í starfi
Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn
Innlent

Heimir Már biðst afsökunar á ummælum um kjarnorkuvopn

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn
Pólitík

Dorrit skorar á forseta Ísraels að hleypa arabískum flokkum í ríkisstjórn

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar
Innlent

Heimir Már skorar á Macron að undirbúa kjarnorkuvopn til notkunar

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu
Innlent

Sverrir segir íslamófóbíu byggja á vanþekkingu

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt
Pólitík

Segir öfgaíslamista og öfga hægrimenn eiga margt sameiginlegt

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“
Pólitík

„Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mannréttinda á Alþingi“

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun
Innlent

Íslenskir sérfræðingar vara við of lítilli þátttöku í brjóstaskimun

Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Lögreglan óttast að ofbeldisfullar óeirðir brjótist út á Tenerife á morgun
Ian McKellen minnist Patrick Stewart
Heimur

Ian McKellen minnist Patrick Stewart

Átta ára drengur skotinn til bana
Heimur

Átta ára drengur skotinn til bana

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta
Heimur

Beit lögregluhund í hálsinn eftir þriggja tíma flótta

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein
Heimur

Skoska lögreglan rannsakar tengsl Andrews við Epstein

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu
Myndband
Heimur

Hópslagsmál brutust út á armenska þinginu

Loka auglýsingu