1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

7
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Ráðist á leigubílstjóra

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Slátrari fékk tíu ár fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt

„Við urðum mjög hissa þegar hann var handtekinn fyrir að selja svínakjöt“

Svín
Svín
Mynd: Joshua Lutz

Slátrari í írösku borginni Najaf hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt. Málið hefur vakið mikla athygli í Írak, enda er Najaf ein helgasta borg sjía-múslima.

Æðsta dómsmálaráð Íraks greindi frá því á mánudag að maðurinn hefði verið staðinn að því að selja 75 kíló af svínakjöti undir því yfirskini að um nautakjöt væri að ræða.

„Dómstóll Najaf hefur dæmt einstakling í tíu ára fangelsi fyrir sölu á kjöti sem ekki var hæft til manneldis,“ sagði í tilkynningu ráðsins.

Neysla svínakjöts er bönnuð samkvæmt íslam þar sem kjötið er talið óhreint. Írösk lög banna þó ekki sérstaklega sölu þess, en kristinn minnihluti býr í landinu.

Dómurinn byggði á lögum frá árinu 1998 sem gera það refsivert að selja hunda-, asna- eða annað kjöt sem talið er óhæft til manneldis.

Najaf hefur sérstaka trúarlega þýðingu fyrir sjía-múslima og heimsækja milljónir pílagríma borgina árlega. Þar er grafhýsi Imam Ali, tengdasonar Múhameðs spámanns, fjórða kalífans og fyrsta imams sjía-múslima.

Málið hefur vakið mikla umræðu á samfélagsmiðlum. Sumir hafa kallað eftir auknu matvælaeftirliti en aðrir gert grín að málinu.

Íbúinn Ahmad al-Mansouri var meðal viðskiptavina slátrarans. Hann sagðist hafa keypt hakkað kjöt hjá honum og talið það vera bæði óvenju gott og ódýrt. Hann fór því að versla þar reglulega.

„Við urðum mjög hissa þegar hann var handtekinn fyrir að selja svínakjöt,“ sagði Mansouri, sem grínaðist með að hann hefði líklega borðað meira svínakjöt en nautakjöt eða lambakjöt undanfarin ár.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu