
Skemmtiferðaskip á vegum Carnival Cruise Line sneri við undan ströndum Mexíkó á laugardag eftir að karlmaður stökk fyrir borð. Leit var gerð að manninum en ekki liggur fyrir hvort hann hafi fundist.
Atvikið átti sér stað um borð í skemmtiferðaskipinu Carnival Panorama sem var á leið frá Puerto Vallarta í Mexíkó til Long Beach í Kaliforníu. Skipið sigldi þá meðfram Baja-skaganum.
Talsmaður Carnival Cruise Line staðfesti við TMZ að karlkyns farþegi hefði stokkið fyrir borð. Þegar áhöfninni barst tilkynning um að mannsins væri saknað voru upptökur úr öryggismyndavélum skipsins skoðaðar. Í kjölfarið var haft samband við strandgæslur Bandaríkjanna og Mexíkó.
Farþegi um borð sagði við TMZ að fjölskyldumeðlimur mannsins hefði leitað aðstoðar hjá þjónustuborði skipsins um klukkan 10:30 að morgni eftir að hafa árangurslaust leitað hans. Tilkynning var þá lesin upp í hátalarakerfi skipsins þar sem kallað var eftir manninum.
Upptökur úr öryggismyndavélum munu síðar hafa staðfest að maðurinn hefði farið fyrir borð. Um klukkan 14 sneri skipið því við og hóf leit á svæðinu.
Leitin stóð yfir í um tvær og hálfa klukkustund en um klukkan 16:30 hélt Carnival Panorama áfram för sinni til Long Beach.
Carnival Cruise Line segir fyrirtækið veita fjölskyldu mannsins, sem var með honum í ferðinni, stuðning vegna atviksins.
Þegar TMZ greindi frá málinu höfðu hvorki Carnival Cruise Line né bandaríska strandgæslan veitt frekari upplýsingar um afdrif mannsins.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
