1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

10
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Til baka

Sumargrillið hækkar í verði

Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni.

Grill
Samantektin sýnir því að heimili landsins þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir sumargrillið en fyrir aðeins tveimur árum.
Mynd: Unsplash/Vincent Keiman

Verð á matvöru hækkaði um 0,3% milli mánaða samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ. Hækkunartakturinn er minni en í upphafi árs en jafngildir þó um 3,7% árshækkun. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 9 verslunum dagana 8-14. Júní en lesa má nánar um úttektina hér.

Sé þróunin skoðuð á ársgrundvelli vega þungt áhrif hækkana á kjötverði og mjólkurvörum. Verðhækkanir á kjötvörum eru breytilegar milli tegunda en mest hefur verð á svínakjöti hækkað (6,7% milli ára) auk lambakjöts (6,2%) og nautakjöts (5,5%).

Rúmlega fjórðungshækkun á nautakjöti yfir tveggja ára tímabil

Sé þróun á algengum vörum fyrir sumargrillveisluna skoðuð yfir tveggja ára tímabil má sjá að verð á kjötvörum, eggjum og mjólkurvörum hefur hækkað umtalsvert frá júní 2024 til júní 2026. Mest hefur verð á nautakjöti hækkað á tímabilinu, eða um 25,5%. Verð á svínakjöti hefur hækkað um 17% að meðaltali og lambakjöti um 16%, en hækkun á kjúklingakjöti hefur verið minni, eða um 9% að meðaltali. Verðið á bernaise sósunni hækkar einnig í verði yfir tímabilið sem rekja má bæði til verðhækkana á eggjum en einnig hefur verð á smjöri hækkað um 9,7% frá sumrinu 2024.

Sumargrillið hækkar umtalsvert í verði

Áhrif framangreindra verðhækkana má sjá í verðþróun á vinsælum grillvörum og kostar nú mun meira að halda grillveislu en áður. Verð á vinsælu grillkjöti líkt og lærissneiðum eða grísakótilettum er nú um 16-17% hærra en áður og hefur grillkjöt almennt hækkað umtalsvert frá sumrinu 2024. Að bjóða uppá grillaðar pylsur með öllu sem dæmi kostar að jafnaði 10,8% meira sumarið 2026 en sumarið 2024. Tilbúnar sósur og ýmsar aðrar vörur sem oft enda á grillborðinu hafa einnig tekið hækkunum, en þó sumar mun minna en aðrar. Sem dæmi má sjá að Gunnars piparrótarsósa hefur einungis hækkað um 6% í verði frá 2024 en SS pylsusinnepið um 17% frá 2024.

Samantektin sýnir því að heimili landsins þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir sumargrillið en fyrir aðeins tveimur árum.

Um könnunina

Verð voru sótt úr úr nýjustu verðtöku ASÍ fyrir júní mánuð. Bornar eru saman sömu vörur milli ára hér er því aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.

Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

Varað er við gríðarlegum hita á vinsælum ferðamannastöðum Íslendinga
William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu