1
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

2
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

3
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

4
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

5
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

6
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

7
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

8
Innlent

Veðurskipti framundan

9
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

10
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

Til baka

Margrét Rut Eddudóttir

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins

Margrét Rut Eddudóttir
Mynd: Aðsend

Sum augnablik kjarna okkur. Augnablik þar sem móðir stendur í myrkri, heldur fast um hendur barnanna sinna og þarf að velja á milli ótta og vonar.

Fyrir tæpum fjórum árum steig Maison Nasser De Nasser út úr flugvél á Íslandi með þrjú ung börn, Saif, Kamal, Yozef. Börnin komu úr stríðsástandi í Sýrlandi, þreytt eftir flótta, ósýnileg sár og líf sem hafði kennt þeim of snemma hvað það þýðir að vera hrædd.

Maison og börnin
Mynd: Víkingur

Þau komu ekki hingað til að taka.

Þau komu hingað til að lifa og tilheyra.

Á meðan veturinn umlukti Ísland lærðu börnin hennar ný orð. Nýtt tungumál. Þau eignuðust nýja vini. Þau lærðu að segja „takk fyrir“, lærðu að treysta fólki aftur og lærðu hægt og rólega að sofa án þess að vakna við skelfingu.

Maison
Mynd: Víkingur

Og smám saman varð Ísland ekki bara staður á korti. Landið okkar varð að heimili. Þau fóru í skóla og tóku þátt í samfélaginu.

Elsti sonurinn, Kamal, hefur lagt sig allan fram og búið sér til líf á Íslandi. Hann stundar nám í Fellaskóla, tekur þátt í fjölbreyttu skólastarfi og hefur meðal annars komið fram með Tónskóla Sigursveins í Hörpu þar sem hann stundar fiðlunám undir leiðsögn Önnu Hugadóttur.

Kamal
Kamal
Mynd: Aðsend

Kennarar hans lýsa honum sem fyrirmynd. Dreng sem vinnur af heilindum og virðingu. Kurteis og blíður drengur sem hefur blómstrað á Íslandi í tæplega fjögur ár. Hér hafa hann og bræður hans eignast sína fyrstu og einu vini. Þeir tala íslensku og ganga í íslenska skóla og þekkja orðið ekkert annað að fá að vera börn í friðsælu landi.

En á bak við daglegt líf fjölskyldunnar leynist stöðugur skuggi. Myrkur og óvissa sem er alltaf handan við hornið.

Óttinn.

Óttinn við að bankað verði á dyrnar.

Óttinn við að þurfa að segja börnunum að þau verði rifin frá öllu sem þau þekkja. Óttinn við að missa heimilið sitt í annað sinn.

Maison
Mynd: Víkingur

Maison hefur reynt allar lagalegar leiðir sem henni stóðu til boða. Málið fór á endanum til Hæstaréttar Íslands. En allt brást. Vegna tvöfalds ríkisfangs hennar stendur til að senda fjölskylduna til Venesúela, lands sem hún á enga raunverulega tengingu við, ekkert bakland og enga framtíð í.

Núna er eina vonin þeirra að fá samþykktan ríkisborgararétt í gegnum Alþingi.

Þau tilheyra Drúsum í Sýrlandi, trúarlegum minnihlutahópi sem hefur ítrekað orðið fyrir ofsóknum og ofbeldi. Alþjóðleg mannréttindasamtök hafa ítrekað greint frá kúgun, árásum og ómannúðlegri meðferð.

Maison veit hvað það þýðir að flýja. Hún veit hvað það kostar móður að horfa á börnin sín missa öryggið sitt.

Það er kannski það sem gerir þessa sögu svo sára.

Því þetta snýst ekki um tölur í kerfi.

Ekki um málsgögn.

Ekki um stimpla eða reglugerðir.

Þetta snýst um þrjú börn sem þekkja ekkert annað en að búa á þessu fallega og friðsæla landi, þar sem vinir þeirra eru, þar sem lífið þeirra er.

Börn sem tala íslensku. Börn sem dreymir á íslensku.

Hvað segir það um samfélag ef börn sem hafa loksins fundið öryggi eru neydd til að byrja aftur frá grunni í landi þar sem þau hafa engin tengsl við og tala ekki tungumálið. Í Venesuela ríkir djúp kreppa og óvissa. Þar hefur ríkt mannúðarkrísa síðan árið 2012 og staðan hefur ekki breyst eftir innrás Bandaríkjanna. Fjórði hver landsmaður hefur flúið landið á undanförnum árum, og í dag er 650% verðbólga í landinu. En af því að Maison flutti með fjölskyldu sinni aftur til Sýrlands frá Venesuela sem barn þá er gengið út frá því að hún hafi þar einhverjar tengingu. En raunin er sú að hún hefur engar tengingar né bakland í Venesuela. Hún er ekki spænskumælandi og börnin hennar hafa aldrei stigið fæti þangað.

Maison
Mynd: Aðsend

Maison biður ekki um mikið.

Hún biður aðeins um tækifæri.

Tækifæri til að vinna.

Til að ala upp börnin sín í friði.

Til að halda áfram að leggja sitt af mörkum til samfélagsins okkar. „Ég bið ykkur að hugsa um börnin mín,“ skrifar hún.

Og vonandi er það þar sem þessi saga mætir þér. Því á einhverjum tímapunkti hættir þetta að vera pólitík, og verður að spurningu um hver við erum. Og hver við viljum vera.

Um það hvort við sjáum fjölskyldu sem hefur misst allt, og hvort við getum leyft okkur að láta þau hverfa inn í myrkrið.

Rithöfundur er sjúkraliði, myndlistarkona, móðir og góðvinur Maison og barnanna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Liðsfélagarnir tóku slagsmálin upp á farsíma í stað þess að stöðva þau.
Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

Dómari skipar Trump að afhenda gögn
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

Smotrich segir Ísrael engan áhuga hafa á að hjálpa Bandaríkjunum í stríðinu
Heimur

Smotrich segir Ísrael engan áhuga hafa á að hjálpa Bandaríkjunum í stríðinu

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Angelina Jolie heiðrar minningu Chibok-stúlkna í Marokkó
Heimur

Angelina Jolie heiðrar minningu Chibok-stúlkna í Marokkó

Skoðun

Áhættuleikur - Börn og seigla
Skoðun

Davíð Már Sigurðsson

Áhættuleikur - Börn og seigla

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands
Skoðun

Jón Ferdínand Estherarson

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands

HUGARSTRÍÐ
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

HUGARSTRÍÐ

Fórnarlömb til slátrunar
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Fórnarlömb til slátrunar

Helvítis útlendingar!
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Helvítis útlendingar!

Opið bréf til dómsmálaráðherra
Skoðun

Alma Hafsteinsdóttir

Opið bréf til dómsmálaráðherra

Loka auglýsingu