Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Þekktur glímukappi lést í miðjum bardaga

Var aðeins 48 ára gamall

Andy Williams (til vinstri) þótti harður í horn að taka
Andy Williams (til vinstri) þótti harður í horn að taka Mynd: grenwail/Wikipedia

Andy Williams, fyrr­verandi glímu­kappi hjá All Elite Wrestling, lést á laugardag í miðjum glímu­bardaga í Pennsylvaníu. Williams, sem var 48 ára, var þekktur í glímu­heiminum undir nafninu The Butcher.

Samkvæmt upplýsingum frá réttar­lækni í Allegheny-sýslu lést Williams á laugardags­kvöld. Hann hafði fyrr um kvöldið tekið þátt í glímunni á viðburði Enjoy Wrestling í Mr. Small's Theater í Millvale.

Williams og félagi hans, The Blade, kepptu þar gegn TME. Aðstand­endur Enjoy Wrestling greindu frá því að Williams hefði hnigið niður í lok bardagans. Læknar komu honum þegar til aðstoðar og hófu endur­lífgun áður en sjúkra­bíll flutti hann á sjúkrahús. Viðburðinum var í kjölfarið aflýst og áhorf­endur sendir heim.

AEW staðfesti andlát Williams og sendi fjöl­skyldu hans, vinum og aðdáendum samúðar­kveðjur. Í yfir­lýsingu sambandsins var Williams minnst bæði fyrir feril hans í tónlist og atvinnuglímu og sagt að hann hefði notið mikillar virðingar meðal starfs­félaga.

Williams var einnig þekktur tónlistar­maður og lék á gítar með þungarokks­hljóm­sveitinni Every Time I Die. Hann hafði um árabil keppt í AEW ásamt The Blade undir merkjum The Butcher and The Blade.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs