1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

„Þetta er móðgun við Íslendinga“

Lítill húmor fyrir Trump hjá ráðherrum Íslands

Kristrún Frostadóttir
Kristrún FrostadóttirEr forsætisráðherra Íslands
Mynd: Víkingur

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gagnrýndu harðlega færslu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum í gær, þar sem Ísland, Grænland, Kanada, Mexíkó og fleiri ríki voru sýnd í fánalitum Bandaríkjanna.

Ráðherrarnir ræddu málið við blaðamenn í morgun á kynningarfundi ríkisstjórnarinnar um áherslumál komandi vetrar. Þorgerður kallaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á sinn fund í gær vegna málsins.

„Það var algjörlega óviðeigandi,“ sagði Þorgerður og bætti við að henni hefði ítrekað verið bent á, meðal annars innan bandarísku stjórnsýslunnar, að ekki ætti að taka Trump bókstaflega en nauðsynlegt væri að taka honum alvarlega.

Þorgerður lagði áherslu á að Ísland væri fullvalda og sjálfstætt ríki sem réði eigin örlögum. Engir aðrir gætu höndlað með sjálfstæði eða fullveldi landsins. Þá ítrekaði hún stuðning Íslands við rétt Grænlendinga til að ákveða eigin framtíð.

Hún sagðist áfram hlakka til samstarfs við Bandaríkin en sagði færslu forsetans ekki geta talist eðlilega.

„Þetta er ekki grín að mínu mati og ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín,“ sagði Þorgerður.

Kristrún tók undir gagnrýnina og sagði undirtón færslunnar „fáránlegan“.

„Þetta er móðgun við Íslendinga, Kanadamenn og Grænlendinga að tjá sig með þessum hætti,“ sagði Kristrún. Hún sagði ekkert fyndið eða eðlilegt við að gera grín að fullveldi ríkja, sérstaklega á tímum þegar fullveldi væri ekki sjálfgefið.

Kristrún sagði samskipti við Bandaríkjamenn almennt góð en að aðstæður í þessum heimshluta væru nú óvenjulegar. Íslendingar þyrftu því að standa fast á sínu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Sigmundur kallar eftir skýrri afstöðu stjórnvalda
Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ
Pólitík

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Loka auglýsingu