Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Trump telur Ísland tilheyra Bandaríkjunum

Donald Trump er forseti Bandaríkjanna
Donald Trump er for­seti Banda­ríkj­anna Virðist vilja Ísland Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Donald Trump Bandaríkja­forseti birti fyrr í dag mynd á samfélags­miðlinum Truth Social þar sem meðal annars Ísland, Mexíkó, Kanada og Grænland eru sýnd á korti með þeim hætti að löndin virðast tilheyra Banda­ríkjunum.

Birtingin vekur athygli í ljósi ítrekaðra yfir­lýsinga Trump um Grænland undan­farin misseri. Forsetinn hefur ítrekað lýst því yfir að Banda­ríkin þurfi að ná yfirráðum yfir Grænlandi og hefur meðal annars vísað til þjóðar­öryggis og vaxandi umsvifa Rússlands og Kína á norðurslóðum.

Myndin sem Trump birti

Trump hefur áður birt sambærilegt myndefni. Í júlí birti hann mynd á Truth Social þar sem Grænland var sýnt í litum bandaríska fánans. Stjórn­völd á Grænlandi hafa ítrekað svarað slíkum yfir­lýsingum með því að undir­strika að framtíð landsins sé í höndum Grænlendinga sjálfra.

Áhugi Trump á Grænlandi nær aftur til fyrra forseta­tímabils hans. Árið 2019 vakti hann mikla athygli þegar hann viðraði hugmyndir um að Banda­ríkin keyptu Grænland af Danmörku. Hugmyndinni var þá hafnað bæði í Danmörku og á Grænlandi.

Eftir að Trump sneri aftur í Hvíta húsið hefur hann gengið lengra í málflutningi sínum. Í janúar á þessu ári sagði hann að Banda­ríkin þyrftu Grænland vegna þjóðar­öryggis og að ekkert annað en bandarísk yfirráð yfir landinu væru ásættanleg.

Málið hefur valdið tals­verðri spennu í samskiptum Banda­ríkjanna við Danmörku og önnur Evrópu­ríki. Stjórn­völd í Danmörku og á Grænlandi hafa alfarið hafnað kröfum hans.

Ekki liggur fyrir hvort birting myndarinnar í dag feli í sér nýja stefnu­mörkun af hálfu Bandaríkja­stjórnar. Sérstaka athygli vekur þó að Ísland skuli einnig vera sýnt með þessum hætti á myndinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning