1
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

2
Fólk

Höllin lækkuð um 45 milljónir

3
Pólitík

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

4
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

5
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

6
Minning

Edda minnist Björgvins Halldórssonar

7
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

8
Heimur

Varalesari segir Trump hafa hvíslað óhugnanlegum orðum til Karls III

9
Heimur

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá

10
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Til baka

Þóra í Bakkakoti skellti á fósturbörnin

„Ég alla vega upplifði enga iðrun. En ég upplifði ótta“

Þóra í Bakkakoti
Þóra Elísabet BernódusdóttirÞóra sýndi litla iðrun í símtalinu
Mynd: Facebook

Umfjöllun Kveiks um það ofbeldi sem drengir sem vistaðir voru í Bakkakoti í æsku, sem sýnd var á RÚV í gær, hefur vakið mikinn óhug meðal Íslendinga.

Í þættinum stigu fram nokkrir af þeim sem voru sendir í fóstur á bóndabæinn Bakkakot á Suðurlandinu og lýstu hryllilegu ofbeldi sem þeir voru beittir þar, andlegu, líkamlegu og kynferðislegu.

Hjónin Jón Ársælsson og Þóra Elísabet Bernódusdóttir voru húsráðendur í Bakkakoti þegar drengirnir dvöldu þar en drengirnir sögðu Jón ekki hafa beitt þá ofbeldinu, heldur Þóra Elísabet. Hún er nú tæplega áttræð og heilsutæp en Jón lést árið 2003.

Fram kemur í þættinum að Þóra hafi oft verið sótölvuð í kringum drengina, sem voru 10-12 ára þegar á dvöl þeirra stóð.

Tveir drengjanna, þeir Svavar Þór Georgsson og Sigvarður Hans Ísleifsson ákváðu í janúar að hringja saman í Þóru, sem liður í því að takast á við fortíðina. Greinilegt er að símtalið reynist þeim báðum mjög erfitt, en þrátt fyrir það ganga þeir ákveðnir til verks og vilja sjá hvernig símtalið fer.

Þegar Þóra svarar símanum spyr Svavar hana hvort eitthvað hafi átt sér stað í Bakkakoti sem hún iðrist í dag. Hún neitar því, en viðurkennir þó að hugsanlega hefði eitthvað getað farið betur. Þegar hann spyr hana sérstaklega um nuddið hafnar hún alfarið að hafa látið drengina nudda sig. Þegar Svavar nefnir líkamlegt ofbeldi svarar hún hins vegar ekki með beinum hætti. Að lokum spyr hann hana almennt um þann tíma sem hann sjálfur dvaldi í Bakkakoti, en þá segist Þóra ekki ætla að fara yfir það og slítur símtalinu skömmu síðar.

Eftir símtalið sitja Svavar og Sigvarður eftir greinilega slegnir og segja ekkert um stund.

„Hún er...já... sko...,“ segir Svavar, greinilega orðlaus.

„Hún er hrædd. Og játar ekki með nuddið,“ segir Sigvarður.

„Það var ekki mikil iðrun í henni,“ segir Svavar.

„Nei og líka bara, um leið og þú nefndir mig vildi hún leggja á,“ segir Sigvarður.

„Þetta er náttúrlega svolítill tími og þetta er náttúrlega „prósess“ líka fyrir hana að rifja upp. Og hún var náttúrlega undir áhrifum,“ segir Svavar.

„En tókstu ekki eftir því, að þegar þú spurðir um áfengið, að hún spurði þig strax á móti; „Varstu ekki að því sjálfur?“ segir Sigvarður við Svavar. „Þannig að hún játaði,“ bætir Sigvarður við.

„Upplifunin er að það er engin iðrun og hún lét það hljóma þannig að þetta væri liðin tíð. Og þetta var bara svona og eins og þetta bara eigi að vera svona. Ég alla vega upplifði enga iðrun. En ég upplifði ótta,“ segir Sigvarður.

Þóra neitaði Kveik um viðtal, að því er fram kemur í þættinum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín
Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki í Þýskalandi
Heimur

Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki í Þýskalandi

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli
Innlent

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs
Pólitík

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs

Sameinuðu arabísku furstadæmin segja sig úr OPEC
Heimur

Sameinuðu arabísku furstadæmin segja sig úr OPEC

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein
Heimur

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein

Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar
Heimur

Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá
Heimur

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá

Innkalla sveppi vegna listeríu
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs
Pólitík

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs

Sigmundur Davíð ósáttur við samstarf fjölmiðla
Pólitík

Sigmundur Davíð ósáttur við samstarf fjölmiðla

Þýskur ferðamaður látinn eftir bit
Heimur

Þýskur ferðamaður látinn eftir bit

Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín
Réttarhöld vegna Múlaborgarmálsins hefjast í dag
Innlent

Réttarhöld vegna Múlaborgarmálsins hefjast í dag

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli
Innlent

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Innkalla sveppi vegna listeríu
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Alexander dæmdur fyrir vopnað rán
Innlent

Alexander dæmdur fyrir vopnað rán

Loka auglýsingu