1
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

2
Innlent

Sjúklingur braut kynferðislega á ölvaðri stúlku á Landspítalanum

3
Innlent

Flóttamaður frá Gaza kveður Ísland eftir langa baráttu við kerfið

4
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

5
Heimur

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum

6
Minning

Stefán Jökulsson er látinn

7
Minning

Leikarinn Aðalsteinn Bergdal er fallinn frá

8
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

9
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

10
Sport

Enskur landsliðsmaður veður í Eggert og Björgólf

Til baka

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs

„Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti?“

Össur
Össur SkarphéðinssonÖssur er ekki hrifinn af færslu Jóns Péturs
Mynd: Facebook

„Plasttappakallinn á þinginu

Jón Pétur Ziemsen, hinn gagnmerki þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem frægur varð af endemum í málþófinu á Alþingi með makalausri ræðu um plasttappa, er enn að gera garðinn frægan.“

Þannig hefst Facebook-færsla Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi ráðherra, þar sem hann gagnrýnir harðlega ummæli þingmanns Jón Pétur Zimsen og segir þau gefa tilefni til alvarlegrar umræðu um viðhorf til kvenna í samfélaginu.

Í færslunni, sem er löðrandi í kaldhæðni, vísar Össur til nýlegrar umræðu um ummæli Zimsen á samfélagsmiðlinum X þar sem hann fjallaði um geðheilsu ungra kvenna og tengdi hana meðal annars við aukna þátttöku þeirra í háskólanámi og stjórnunarstöðum.

Össur gagnrýnir sérstaklega orðalag Zimsen þar sem hann segir: „Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum.“ Að mati Össurar má túlka þessi orð sem vísbendingu um að þingmaðurinn telji konur síður hæfar til stjórnunarstarfa og að menntun þeirra kunni að hafa neikvæð áhrif á geðheilsu þeirra.

„Varla er þó hægt að túlka þetta öðru vísi en svo að þingmaðurinn sé þeirrar skoðunar að konur séu erfðafræðilega miður hæfar til að gegna stjórnunarstörfum og að menntun þeirra kunni að eiga sök á versnandi geðheilsu. Þetta eru semsagt skilaboð Sjálfstæðisflokksins til ungra kvenna á fyrsta fjórðungi 21. aldarinnar.“

Hann segir að slíkur málflutningur endurspegli ákveðin skilaboð til ungra kvenna í samtímanum og setur þau í samhengi við eldri viðhorf til hlutverks kvenna í samfélaginu. „Rifjast þá upp ummæli þekkts leiðtoga úr skyldum flokki sem af öðru tilefni lét svo um mælt að staða konunnar væri á bakvið eldavélina!“ skrifar hann.

Í lok færslunnar gagnrýnir Össur einnig stöðu Sjálfstæðisflokksins og telur að slíkur málflutningur geti haft áhrif á fylgi flokksins. Þá nefnir hann einnig Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í samhengi við pólitíska stöðu og mögulegar breytingar á vettvangi stjórnmálanna.

„Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti og að væn kona einsog Þórdís Kolbrún taki sprettinn úr Sjálfstæðisflokknum yfir í viðeisnarfaðm Þorgerðar Katrínar eftir lengstu umsókn um sendiherrastöðu sem sögur fara af?“

Afsökunarbeiðni Jóns Péturs

Jón Pétur baðst afsökunar í morgun á færslunni, í ræðustól Alþingis, að því er fram kemur í frétt Vísis, þar sem hann sagði meðal annars:

„Ég vil nota þetta tækifæri til að bregðast við þeirri umræðu sem skapaðist í kjölfar færslu sem ég birti á samfélagsmiðlum síðastliðið sunnudagskvöld. Færslan fór öfugt ofan í marga og það með réttu. Mér þykir það mjög miður. Færslan og sá skilningur sem lagður hefur verið í hana er ekki í samræmi við það sem ég vil standa fyrir né það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi
Heimur

Dómari gripinn að stunda hávært kynlíf í dómshúsi

Ross vakti áður athygli þegar hún dæmdi Todd Chrisley í fangelsi
Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni
Myndband
Heimur

Unglingsstúlka hafði betur í bardaga gegn árásarmanni

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi
Heimur

Disney-stjórnandi dæmdur í fangelsi í Rússlandi

Króatar takmarka drykkju ferðamanna
Heimur

Króatar takmarka drykkju ferðamanna

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns
Innlent

Elísabet hrækti í andlit lögreglumanns

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu
Myndir
Fólk

Vel staðsett einbýlishús í Reykjavík til sölu

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar
Heimur

Sænsk kona neydd til að vinna í svikaverksmiðju í Myanmar

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana
Myndband
Heimur

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki
Innlent

MAST varar við neyslu á þekktu og vinsælu próteinstykki

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hjóna eftir umfangsmikið netsvindl

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið
Heimur

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum
Heimur

Barn, kona og karl féllu til bana úr turni í Lundúnum

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Helga Vala styður ákvörðun Hildar um samstarf
Pólitík

Helga Vala styður ákvörðun Hildar um samstarf

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Loka auglýsingu