Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

„Hvaða djöfla­sýra er þetta?“

Jón Pétur Zimsen
Jón Pétur Zimsen Færsla Jóns féll í frekar grýttan jarð­veg Mynd: Víkingur

Óhætt er að segja að nýleg færsla þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Jóns Péturs Zimsen, á sam­fé­lags­miðl­inum X, hafi ýft fjaðrir margra. Þar talar hann um geð­heilsu ungra kvenna og nefnir fjölgun kvenna í stjórn­un­ar­stöðum og í háskóla­námi í sömu andrá. Færslan hljóðar í heild sinni á eft­ir­far­andi hátt:

„Geð­heilsa ungra kvenna, 15–25 ára er á hrika­legum stað í dag þrátt fyrir að hvergi í heim­inum búi þær við meira jafn­rétti. Rúmur helm­ingur þeirra telur and­lega heilsu sína EKKI góða og fer versn­andi. Sl. ára­tugi hefur konum fjölgað veru­lega í flestum stjórn­un­ar­stöðum sam­fé­lags­ins og eru í miklum meiri­hluta háskóla­nema sam­hliða því að frjó­semi minnkar og skiln­uðum fjölgar. Í upp­lýs­ingum land­læknis er þessi hópur sá sem stendur verst allra hópa sam­fé­lags­ins, hvað geð­heil­brigði varðar. Þetta er umhugs­un­ar­efni fyrir okkur öll og tími til kom­inn að skoða hvað það er sem veitir okkur lífs­fyll­ingu og til­gang. Við bælum ekki niður árþús­unda nátt­úru­val vegna skoð­ana fram­sæk­inna háskóla­manna af hug­vís­inda­deildum. Minnkum áherslur á umbúðir, hamstra­hjólið og firr­ingu okkar allra vegna. Njótum þess að tengj­ast okkar nán­ustu. Það er það sem gefur líf­inu til­gang og er drif­kraftur ham­ingju.“

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar skrif­aði færslu um orð Jóns og segir að það væri „fróð­legt að heyra afstöðu“ flokks­systra Jóns, þeirra Bryn­dísar Har­alds­dóttur og Hildar Sverr­is­dóttur.

Fjöl­margir nafn­tog­aðir ein­stak­lingar sem og aðrir skrifa athuga­semd við færslu Helgu Völu og þykir mörgum sem færsla Jóns lykti af stækri karl­rembu.

Fyrr­ver­andi þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, Halla Signý Krist­jáns­dóttir skrif­aði kald­hæðna athuga­semd:

„Við erum ham­ingju­samastar bak við elda­vél­ina, það er nið­ur­staðan,“ skrif­aði hún og vakti lukku les­enda.

Egill Helgason fjöl­miðla­maður tekur í sama streng og Halla Signý og segir: „Vá! Farið nú aftur bak við elda­vél­ina!“

Frétta­rit­ar­inn Jóhann Hlíðar Harð­ar­son skrif­aði líka athuga­semd. Hún var stutt en beint að efn­inu.

„Hvaða djöfla­sýra er þetta?“

Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta benti á að Jón eigi sæti í fram­tíð­ar­nefnd Alþingis.

„Þessi maður á sæti í fram­tíð­ar­nefnd Alþingis. Við verðum allar ham­ingju­samar heima­vinn­andi að hugsa um karla, börn og gam­al­menni í fram­tíð­inni í ólaun­aðri umönnun - af því það er svo ynd­is­legt.“

Jódís Skúla­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Vinstri grænna skrif­aði einnig athuga­semd og það í kald­hæðna kant­inum:

„Hvað á að gera við less­urnar? Og er ok að hlekkja sig frekar við air-fryer­inn? Er að spyrja fyrir vin­konu….“

Illug Jök­uls­son fjöl­miðla­maður sér ekk­ert fyndið við færslu Jóns og skrifar athuga­semd þar sem hann segir einmitt það. Því er hins vegar bar­áttu­konan og amma Snorra Mássonar, Helga Kress ósam­mála: „Þetta er nú svo­lítið fyndið: "Af hug­vís­inda­deildum"!!! Hvaðan kemur hann þessi!“

Hall­grímur Helgason, rit­höf­undur og mál­ari telur sig hafa fundið ástæð­una fyrir færslu Jóns:

„Hann datt í sjó­inn og lík­ams­hit­inn fór niður í 32 gráður, IQ virð­ist hafa fallið líka.“

Lengstu athuga­semd­ina á Grímur Atlason, fram­kvæmd­ar­stjóri Geð­hjálp­ar­eig­in­maður og eig­in­maður Helgu Völu en hann setur færslu Jóns í sögu­legt sam­hengi:

„Hitler veitti konum sem voru dug­legar að eiga börn sér­staka orðu: Heið­urs­merki hinnar þýsku móður (þ. Mutterkreuz) en það fengu konur sem eign­uð­ust mörg börn. Heið­urs­merkið var þrí­þætt: brons fyrir fjögur til fimm börn, silfur fyrir sex til sjö og gull fyrir átta eða fleiri börn. Þetta var hluti af stefnu stjórn­valda til að hvetja til fólks­fjölg­unar og styrkja "þýska þjóð­ar­stofn­inn“

Stalín tók þetta upp þegar hann var búinn að leysa "Kvenna­vanda­málið". Árið 1944 var byrjað að veita heið­urs­orð­una: Móðir hetja (rúss. Мать-героиня). Þessa orðu fengu konur sem höfðu eign­ast tíu börn eða fleiri.

Hljótum að fara að sjá Fjall­konu­meist­ara­kross­inn fyrir íslenskar (alvöru íslenskar) konur sem kjósa að vera heima yfir 3-10 börnum. Hafa þetta í brons, silfri, gulli og dem­anti (taka þetta alla leið) eftir fjölda.

Fram­tíðin er í boði nátt­úru­vals.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“