1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

„Hvaða djöflasýra er þetta?“

Jón Pétur Zimsen
Jón Pétur ZimsenFærsla Jóns féll í frekar grýttan jarðveg
Mynd: Víkingur

Óhætt er að segja að nýleg færsla þingmanns Sjálfstæðisflokksins, Jóns Péturs Zimsen, á samfélagsmiðlinum X, hafi ýft fjaðrir margra. Þar talar hann um geðheilsu ungra kvenna og nefnir fjölgun kvenna í stjórnunarstöðum og í háskólanámi í sömu andrá. Færslan hljóðar í heild sinni á eftirfarandi hátt:

„Geðheilsa ungra kvenna, 15–25 ára er á hrikalegum stað í dag þrátt fyrir að hvergi í heiminum búi þær við meira jafnrétti. Rúmur helmingur þeirra telur andlega heilsu sína EKKI góða og fer versnandi. Sl. áratugi hefur konum fjölgað verulega í flestum stjórnunarstöðum samfélagsins og eru í miklum meirihluta háskólanema samhliða því að frjósemi minnkar og skilnuðum fjölgar. Í upplýsingum landlæknis er þessi hópur sá sem stendur verst allra hópa samfélagsins, hvað geðheilbrigði varðar. Þetta er umhugsunarefni fyrir okkur öll og tími til kominn að skoða hvað það er sem veitir okkur lífsfyllingu og tilgang. Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum. Minnkum áherslur á umbúðir, hamstrahjólið og firringu okkar allra vegna. Njótum þess að tengjast okkar nánustu. Það er það sem gefur lífinu tilgang og er drifkraftur hamingju.“

Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar skrifaði færslu um orð Jóns og segir að það væri „fróðlegt að heyra afstöðu“ flokkssystra Jóns, þeirra Bryndísar Haraldsdóttur og Hildar Sverrisdóttur.

Fjölmargir nafntogaðir einstaklingar sem og aðrir skrifa athugasemd við færslu Helgu Völu og þykir mörgum sem færsla Jóns lykti af stækri karlrembu.

Fyrrverandi þingkona Framsóknarflokksins, Halla Signý Kristjánsdóttir skrifaði kaldhæðna athugasemd:

„Við erum hamingjusamastar bak við eldavélina, það er niðurstaðan,“ skrifaði hún og vakti lukku lesenda.

Egill Helgason fjölmiðlamaður tekur í sama streng og Halla Signý og segir: „Vá! Farið nú aftur bak við eldavélina!“

Fréttaritarinn Jóhann Hlíðar Harðarson skrifaði líka athugasemd. Hún var stutt en beint að efninu.

„Hvaða djöflasýra er þetta?“

Drífa Snædal, talskona Stígamóta benti á að Jón eigi sæti í framtíðarnefnd Alþingis.

„Þessi maður á sæti í framtíðarnefnd Alþingis. Við verðum allar hamingjusamar heimavinnandi að hugsa um karla, börn og gamalmenni í framtíðinni í ólaunaðri umönnun - af því það er svo yndislegt.“

Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna skrifaði einnig athugasemd og það í kaldhæðna kantinum:

„Hvað á að gera við lessurnar? Og er ok að hlekkja sig frekar við air-fryerinn? Er að spyrja fyrir vinkonu….“

Illug Jökulsson fjölmiðlamaður sér ekkert fyndið við færslu Jóns og skrifar athugasemd þar sem hann segir einmitt það. Því er hins vegar baráttukonan og amma Snorra Mássonar, Helga Kress ósammála: „Þetta er nú svolítið fyndið: "Af hugvísindadeildum"!!! Hvaðan kemur hann þessi!“

Hallgrímur Helgason, rithöfundur og málari telur sig hafa fundið ástæðuna fyrir færslu Jóns:

„Hann datt í sjóinn og líkamshitinn fór niður í 32 gráður, IQ virðist hafa fallið líka.“

Lengstu athugasemdina á Grímur Atlason, framkvæmdarstjóri Geðhjálpareiginmaður og eiginmaður Helgu Völu en hann setur færslu Jóns í sögulegt samhengi:

„Hitler veitti konum sem voru duglegar að eiga börn sérstaka orðu: Heiðursmerki hinnar þýsku móður (þ. Mutterkreuz) en það fengu konur sem eignuðust mörg börn. Heiðursmerkið var þríþætt: brons fyrir fjögur til fimm börn, silfur fyrir sex til sjö og gull fyrir átta eða fleiri börn. Þetta var hluti af stefnu stjórnvalda til að hvetja til fólksfjölgunar og styrkja "þýska þjóðarstofninn“

Stalín tók þetta upp þegar hann var búinn að leysa "Kvennavandamálið". Árið 1944 var byrjað að veita heiðursorðuna: Móðir hetja (rúss. Мать-героиня). Þessa orðu fengu konur sem höfðu eignast tíu börn eða fleiri.

Hljótum að fara að sjá Fjallkonumeistarakrossinn fyrir íslenskar (alvöru íslenskar) konur sem kjósa að vera heima yfir 3-10 börnum. Hafa þetta í brons, silfri, gulli og demanti (taka þetta alla leið) eftir fjölda.

Framtíðin er í boði náttúruvals.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu