
Adli Albayyouk hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur en dómur þess efnis var birtur fyrir stuttu.
Hann var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa, föstudaginn 1. desember 2023, utandyra við Fiskislóð í Reykjavík, veist með ofbeldi að manni, og kýlt hann ítrekað í andlit og höfuð með lykli, með þeim afleiðingum að hann hlaut stungusár hjá vinstra auga, mörg opin sár á höfði og marga ótilgreinda yfirborðsáverka.
Albayyouk neitaði sök en hann var dæmdur sekur eftir að dómarinn hlustaði á vitnisburð og sýnd myndbandsupptaka af áflogum tengdum þessu máli.
Hann var dæmdur í 30 daga fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá þarf hann að greiða fórnarlambi sínu 300 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Einnig þarf hann að greiða eigin málskostnað og málskostnað fórnarlambsins.
Komment