1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

5
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

10
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Til baka

Edda minnist Björgvins Halldórssonar

„Hann var kletturinn okkar fjölskyldunnar þegar Gísli dó“

Edda Björgvinsdóttir
Edda BjörgvinsdóttirÞjóðargersemi minnist annarrar þjóðargersemis
Mynd: Þjóðleikhúsið

Leikkonan Edda Björgvinsdóttir minnist stórsöngvarans Björgvin Halldórsson með hlýjum og persónulegum orðum í færslu á samfélagsmiðlum en útför hans fer fram í Hallgrímskirkju klukkan 15:00 í dag.

Í færslunni lýsir hún djúpum sorgum og segir missinn þungbæran fyrir bæði fjölskyldu og þjóð. „Himnarnir gráta. Björgvin Halldórsson okkar er farinn. Hann var kletturinn okkar fjölskyldunnar þegar Gísli dó. Björgvin - vinur okkar og fjölskyldumeðlimur. Ómetanlegur fjársjóður heillar þjóðar. Þetta er fullkomlega óskiljanlegt,“ skrifar Edda.

Hún rifjar upp náið samband fjölskyldnanna í gegnum árin og segir þær hafa gengið saman í gegnum lífið, deilt gleði og sorgum og stutt hver aðra. „Ragnheiður frænka mín varð skotin í sætu poppstjörnunni um svipað leyti og ég varð skotin í stóra Kaffibrúsakarlinum og frá þeim tímapunkti fylgdumst við að í gegn um lífið - hlógum og grétum saman, ólum upp börnin okkar saman og stóðum við bakið hvert á öðru alla tíð,“ skrifar hún.

Edda lýsir sérstaklega stuðningi Björgvins á erfiðum tímum eftir fráfall eiginmanns hennar, Gísla. „Þegar Gísli okkar dó þá steig Björgvin ákveðið inn, tók utan um fjölskylduna og tjaslaði okkur saman fyrstu vikurnar. Hann skipulagði allt í kring um útförina, söngvarana, athöfnina, útsendinguna og bókstaflega hélt í okkur lífinu.“

Hún segir erfitt að setja í orð hversu stórt hlutverk Björgvin hafi gegnt í íslensku samfélagi. „Það er eiginlega ekki hægt að byrja að ræða þetta stórveldi sem Björgvin var í lifenda lífi enda hefur verið ótrúlega mikið rætt og ritað um þessa þjóðareign. Allir kunna sögu af orðsnilld stórsöngvarans.“

Edda rifjar einnig upp hlýja nærveru hans og einstakan persónuleika. „„Don´t be a stranger“ sagði hann ef honum fannst líða of langt á milli heimsókna. Stór orð eins og meistari, snillingur og þjóðargersemi ná ekki að lýsa broti af því sem þessi einstaki maður var í öllu sínu veldi.“

Að lokum sendir hún fjölskyldu hans samúðarkveðjur

„Við elskum hann skilyrðislaust og ég faðma heitt og innilega Ragnheiði, Svölu, Krumma, Sigurð og stórfjölskyldu Björgvins og sendi mína dýpstu samúðarkveðjur. Mig brestur orð. Þjóðin kveður einstakan dýrgrip með þungu hjarta.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu