1
Innlent

Konan er fundin

2
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

3
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

4
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

5
Innlent

Bylting við flugstöðina

6
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

7
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

8
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

9
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

10
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

Til baka

Þórólfur tekur upp hanskann fyrir byssumanninn

„Þetta atvik er einfaldlega fáránlegt og vekur margar spurningar“

Grindavík
GrindavíkByssumaðurinn segir alsaklaus.
Mynd: Shutterstock

Þórólfur Júlían Dagsson tekur upp hanskann fyrir manninn sem handtekinn var í gær þegar hann var sagður ógna björgunarsveitarfólki sem var að aðstoða lögregluna við að rýma Grindavík.

Þórólfur, fyrrverandi oddviti Pírata í Reykjanesbæ og stjórnarmaður í Stranveiðifélagi Íslands, skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann ver Her­mann Ólafs­son, Grind­vík­ing­ og fyrr­um for­stjóri út­gerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Stakka­vík­ur. Sérsveitin handtók Hermann í gær þar sem hann var sagður hafa ógnað björgunarsveitarmönnum með haglabyssu. Sjálfur segir Hermann í viðtali við mbl.is að hann hafi hreint ekki ógnað neinum með byssunni, heldur einungis setið fyrir á ljósmynd með byssunni í gríni og að björgunarsveitarfólkið hafi tekið vel í það. Lýsti hann gærdeginum sem þeim versta sem hann hafi lent í og ætlar hann að fara í skaðabótarmál gagnvart „þessu liði“.

Þórólfur segir málið „ótrúlegt og óásættanlegt“ og að hann hafi aldrei upplifað Hermann sem einhvern sem myndi gera öðrum mein:

„Það sem stendur upp úr í dag er að sérsveitin tók Herman, eða Hemma eins og hann er jafnan kallaður, sem kenndur er við Stakkavík, og skellti honum harkalega niður í götuna. Þetta er alveg ótrúlegt og óásættanlegt. Ég og Hemmi höfum vissulega átt okkar deilur um kvótakerfið, en aldrei hef ég upplifað að hann væri að fara að gera mér eða öðrum mein. Í dag tel ég Hemma góðan vin sem gott er að hitta og fá góð ráð hjá þegar á þarf að halda.“

Í seinni hluta færslunnar mærir Þórólfur Hermann sem hann segir mikilsvirtan í Grindavík og hafi lagt mikið af mörgum til samfélagsins. Segir hann það sláandi að sérsveitin telji nauðsynlegt að koma svona fram við sjötugan mann.

„Hermann hefur verið mikils virtur í Grindavík þar sem hann byggði upp farsælt fyrirtæki sitt, Stakkavík, frá grunni. Hann hefur lagt mikið af mörkum til samfélagsins, skapað atvinnu og styrkt stöðu bæjarins sem mikilvægs sjávarútvegsstaðar. Það er því enn meira sláandi að sérsveitin telji nauðsynlegt að fara svona harkalega fram gagnvart 70 ára gömlum manni, sem alla tíð hefur verið þekktur fyrir að vera gæða blóð og traustur maður í sínu samfélagi. Þetta atvik er einfaldlega fáránlegt og vekur margar spurningar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

Límband var einnig sett yfir munn hans
Hákarl synti um götur New Jersey
Myndband
Heimur

Hákarl synti um götur New Jersey

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu
Myndir
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“
Innlent

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu
Innlent

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

Límband var einnig sett yfir munn hans
„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“
Innlent

„Við höfum bara lært mikið af hruninu eins og aðrir“

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu
Innlent

Lögreglan kallaði eftir virðingu í miðju partýinu

Loka auglýsingu