Nokkuð var um umferðarlagabrot hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Meðal annars voru ökumenn stöðvaðir undir áhrifum vímuefna og án ökuréttinda, auk þess sem einstaklingur féll af rafhlaupahjóli á mikilli ferð.
Lögregla stöðvaði ökumann við almennt eftirlit sem reyndist vera undir áhrifum vímuefna og án ökuréttinda. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem málið var tekið til hefðbundinnar meðferðar. Honum var sleppt að henni lokinni.
Annar ökumaður var stöðvaður við almennt eftirlit og kom þá í ljós að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu.
Þá barst lögreglu tilkynning um bifreið sem ekið var með glæfralegum hætti í vesturhluta Reykjavíkur. Lögreglumenn höfðu uppi á bifreiðinni og reyndist ökumaður hennar einnig vera án ökuréttinda. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu.
Lögreglu var jafnframt tilkynnt um einstakling sem féll af rafhlaupahjóli á mikilli ferð. Ekki lágu fyrir upplýsingar um umfang meiðsla þegar dagbók lögreglu var send út.
Í öðru umferðarslysi hafði bifreið verið ekið á ljósastaur. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin varð fyrir tjóni.
Enn einn ökumaður var stöðvaður við almennt eftirlit og reyndist hann undir áhrifum vímuefna. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð en sleppt að lokinni hefðbundinni málsmeðferð.
Lögregla hafði einnig afskipti af ökumanni vegna filma í framrúðum bifreiðar hans. Vettvangsskýrsla var rituð og bifreiðin boðuð í skoðun á eftirlitsstöð.
Auk umferðarmálanna var tilkynnt um þjófnað úr verslun og er málið til rannsóknar. Þá barst tilkynning vegna samkvæmishávaða og var húsráðanda gert að virða svefnfrið annarra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir