1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

4
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

5
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

6
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

7
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

8
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Til baka

Ungir menn dæmdir fyrir fjölda alvarlegra afbrota

Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur

Austurstræti
Austurstræti

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir röð brota sem náðu yfir tæplega tveggja ára tímabil, meðal annars líkamsárásir, húsbrot, eignaspjöll, vopnalagabrot, fíkniefnalagabrot, akstur undir áhrifum fíkniefna og brot gegn lögreglulögum. Samverkamaður hans var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, eignaspjöll og vopnalagabrot, en ákvörðun refsingar hans var frestað skilorðsbundið.

Afbrotamennirnir eru ekki nafngreindir í dómnum og er sennilegt að það sé vegna ungs aldurs.

Málið á rætur að rekja til atburða í Kópavogi í apríl 2024. Samkvæmt dóminum réðst aðalmaðurinn á tvo einstaklinga og sló þá ítrekað í andlit með þeim afleiðingum að þeir hlutu áverka. Í framhaldinu réðust báðir mennirnir á þriðja einstaklinginn á heimili hans, neituðu að yfirgefa staðinn þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og ollu skemmdum á húsnæðinu. Við brottför dró annar þeirra upp hníf, lamdi í dyrastaf og útidyrahurð með hnífsskafti og sparkaði í glugga. Við öryggisleit fannst einnig hnífur á hinum ákærða.

Auk þess var aðalmaðurinn sakfelldur fyrir vörslu 2,76 gramma af tóbaksblönduðu kannabisefni, akstur undir áhrifum kannabis þar sem magn virka efnisins mældist 5,6 nanógrömm í millílítra blóðs og fyrir að hafa hunsað fyrirmæli lögreglu fyrir utan skemmtistaðin Útópíu við Austurstræti þar sem hann var með glerflösku og sýndi ógnandi hegðun.

Báðir ákærðu játuðu sök skýlaust fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til ungs aldurs þeirra, hreinnar játningar og tafa sem urðu á rannsókn og útgáfu ákæru.

Aðalmaðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða 200 þúsund króna sekt, sæta 18 mánaða sviptingu ökuréttar og upptöku fíkniefna og hnífs. Þá voru mennirnir dæmdir til að greiða einum brotaþola 250 þúsund krónur í miskabætur sameiginlega, en aðalmaðurinn einn greiðir tveimur öðrum brotaþolum samtals 700 þúsund krónur í miskabætur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza
Myndband
Heimur

Ísraelskir ráðherrar leiddu kröfugöngu um nýjar landnemabyggðir á Gaza

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Myndband
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York
Myndband
Heimur

Sprenging skók alríkisbyggingu í New York

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum
Heimur

Ellefu ára drengur lést í fjallgöngu með föður sínum

Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Eva Hauksdóttir tjáir sig um frávísun í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem ákærður var fyrir að valda dauða móður hennar.
Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta
Innlent

Ofurverð á Íslandi fær fólk til að hlæja og gráta

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans
Innlent

Markús endaði á bráðamóttöku eftir árás nágrannans

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu
Innlent

Vinsæl leikföng tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Loka auglýsingu