Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Pete Davidson hefur sótt áfallameðferð vegna Kanye: „Hann getur ekki þagað lengur“

Pete Davidson og Kanye West.
Pete Davidson og Kanye West.

Pete Davison hefur ákveðið að setja andlega heilsu sína í fyrsta sætið. Grín­istinn hefur sótt áfalla­meðferð, meðal annars vegna eineltis af hendi Kanye West á samfélags­miðlum.

Samkvæmt Eonline.com hefur grín­leikarinn vinsæli sótt áfalla­meðferð síðan í apríl og er ein af aðal­ástæðunum fyrir því, eineltis­póstar Kanye West gegn honum á samfélags­miðlum. Peter hefur verið í sambandi við fyrrum eiginkonu Kanye og barns­móður hans, Kim Kardashian síðastliðna níu mánuði en þau ákváðu nýverið að vera aðeins vinir.

Nýjasta dæmið um einelti Kanye gegn Peter er aðeins þriggja daga gamalt. Þá brást rapparinn við fréttum af sambands­slitum þeirra Pete og Kim með því að birta gervi­fyrirsögn New York Times þar sem stóð „Skete Davidson látinn 28 ára að aldri.“ en Skete er uppnefni sem rapparinn notar á Pete. Áður hafði Kanye skotið fast á Pete á samfélags­miðlum allt frá því hann hóf samband við Kim. Kallaði hann Pete meðal annars rasshaus (e. dickhead). Þá rappaði hann einnig um að berja Pete í lögum sínum.

Til að byrja með gerðu þau Kim og Pete sitt besta við að hundsa gjörðir Kanye en rapparinn gaf sig ekki og byrjaði jafnvel að skjóta á barns­móður sína. Síðar viðurkenndi hann að hafa gengið of langt þar.

Í mars birti vinur Pete, Dave Sirus skjá­myndum af smáskilaboðum sem Kanye og Pete sendu sín á milli. Þar varði Pete kærustu sína Kim og sagði að hún væri „bókstaf­lega besta mamma sem ég hef hitt,“ og bætti við að hann þyrfti að þroskast.

Samkvæmt heimildum E! News hefur Pete þó alveg fengið nóg. „Honum var alveg sama þegar Kanye skaut á hann,“ sagði heimildar­maður slúður­miðilsins og bætti við „en þegar hann réðist að Kim og börnunum, getur hann ekki lengur horft fram hjá því. Hann getur ekki þagað lengur.“

Kim heldur áfram að styðja Pete en heimildar­maður E! News sagði miðlinum að Kim sé í uppnámi vegna fyrir­sagnarinnar sem Kanye setti á Instagram. „Hún er ekki aðeins döpur vegna sambands­slitanna heldur hefur þetta ofan á það, bugað hana andlega. Hún samþykkir ekki svona hegðun og mun ekki sætta sig við að farið sé svona með ástvini hennar. Hún bað hann margsinnis að taka niður þessa færslu. Hún mun alltaf verja Pete.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt