Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Yara frá Mósambík: „Ég kalla Ísland heimili mitt með hlýju í hjarta“

Yara Polana er 33 ára „introvert“, létt í lund og mikill vinnu­forkur. Hún lærði grafíska hönnun við Lista­háskóla Íslands og starfar nú sem [senior] forritari hjá íslenska app-fyrir­tækinu YAY. Þegar aðstæður leyfa kemur hún fram með hljómsveitum sínum; Issamwera, Sunna Fridjons og Miðnótt. Í viðtali við Mannlíf ræðir hún um tónlistina, heimaland sitt og þegar hún flutti til Íslands til þess að fara í nám.

Yara er frá Mósambík og segir hún sitt heimaland vera heitt og þá á hún ekki bara við veðrið, heldur er hiti í fólkinu. Hún segir að fólkið í Mósambík sé vingjarnlegt, opið og að menningin sé mjög fjöl­breytt.

Öll lönd eiga sína kosti og galla

„Upphaf­lega ætlaði ég til Noregs í nám, en manneskjan sem sá um þær ráðstafanir veiktist og ég flutti í kjölfarið til Íslands. Sem betur fer, þrátt fyrir erfiða tíma hjá henni, tókst þessari fallegu sál að gera ráðstafanir fyrir mig um inngöngu í Lista­háskólann á Íslandi í staðinn.“

Yara hefur búið á Íslandi í nærri 10 ár og segir: „Öll lönd hafa nátt­úrlega sína kosti og galla. Ég hef varið lunganum úr mínum fullorðins­árum á Íslandi og íslensk menning leikið gífurlega stórt hlutverki í mótun minni í þá manneskju sem ég er í dag. Svo ég kalla Ísland heimili mitt, með hlýju í hjarta.“

Aðspurð hvort hún upplifi líkindi með þessum tveimur löndum segir hún:

„Fyrir utan verulegan pólitískan mun, þá er veður­farið augljós­lega mjög ólíkt. Hins vegar er fólkið í þessum tveimur löndum gífurlega vingjarnlegt og ósvikið og þá er tónlistar- og lista­senan mjög lík. Sérstak­lega núna, þegar internetið er orðið aðgengilegra á fátækari svæðum í Mósambík og auðveldara fyrir fólk að finna sig, en listin lifir á hverju horni. Þetta er það sem ég fann einnig hér á Íslandi og það sem fékk mig til að upplifa Ísland sem heimili. Listin og tónlistin er alls staðar og ef maður tekur henni opnum örmum þá dafnar maður.“

Þú getur alltaf fundið þinn sess hér

Yara upplifir íslenska tónlistar­senu sem mjög fjöl­breytta og ríka, allt frá poppi til rapps, reggí til metal­tónlistar.

„Sama hvaða „niche“-stefnu þú tilheyrir þá geturðu alltaf fundið þinn sess hér, sem er mjög áhugavert fyrir tónlistar­heila eins og minn.“

Geturðu sagt okkur frá hljóm­sveitinni Issamwera?

„Issamwera er íslensk afro-djass-fúsjon-hljómsveit sem var stofnuð í miðbæ Reykja­víkur. Nafnið varð til úr íslenska orðinu samvera og orðinu issamwera úr tungu­málinu sena frá borginni Beira í Mósambík. Orðið issamwera þýðir að koma eða að vera velkomin.“

Hljóm­sveitin var stofnuð árið 2013 eftir að tónlistar­konan Yara, einnig þekkt undir nafninu Monace og er fædd og uppalin í Mósambík, fékk „rytma-köllun“ að eign sögn. Yara leikur á aragrúa hljóðfæra en gítar er aðal­hljóðfærið. Uppspretta verk­efnisins var heimþrá, en Yara hljóð­ritar allt sitt efni í eigin heima­stúdíói. Eftir að hún kynntist tónlistar­mönnunum Ellerti, Andres, Cheik, Ingó og Kwami varð hugmyndin að raun­veruleika. Þeir krydduðu hugmyndina með nýjum hljómi, kraft­miklum afrískum trommum og sterkum suður­amerískum straumum. Frá þeim tíma fékk hún trú á að það sem var að skapast væri einstakt og þess virði að halda áfram að móta.

Kjarna hljóm­sveitarinnar mynda Andres á bassa, Cheik og Kwami á slagverk, Ellert á hljómborð, Ingólfur á gítar, og Yara á trommu­sett og í laga­smíðum. Á plötunni koma einnig fram gesta­spilarar; Sunna Friðjóns­dóttir, á þver­flautu og söng, og Arianna Ferro, sem syngur bakrödd.

Blanda af afrískum og latín-töktum

„Við spilum blöndu af afrískum, latín- og djass­rytmum. Hvert lag hefur sína sögu, sitt eigið ferðalag, og er jafnvel sín eigin tegund innan þessarar blöndu.

Hljóm­sveitin hefur komið fram á Iceland Airwaves Offvenue, Fest Africa Reykjavík í Iðnó, Vinyl Restaurant, Kaldabar, en uppáhalds­giggið var á Menningar­nótt á Vínyl, en þar náðum við hverjum einasta gesti út á dans­gólfið.“

Fyrsta plata þeirra mun koma út um út mitt þetta ár, en þau söfnuðu fyrir kostnaði hennar í gegnum Karolina Fund með 130% söfnun. Þau sem hafa styrkt geta nú þegar fengið aðgang að plötunni. 

Nokkur lög hafa verið gefin út á streymis­veitum og eitt lag af plötunni, suðræna lagið Ástin mín, og einnig lagið Lifa lengur, kom út 17. desember síðastliðinn og er stútfullt af afrískum töktum.

Hvernig kom til að þessi hópur hljómlistar­manna náði saman?

„Við tengjust á ákveðinn hátt, við trúum því öll að saman getum við náð langt og skapað magnaða tónlist og það er það sem hljóm­sveitin stendur fyrir. Okkur langar að deila með fólki hver við erum, hvaðan við komum, hvað við höfum upplifað, í gegnum tónlistina, og besta leiðin er að gera það saman, með þeim sem taka manni opnum örmum.“

Upplifa orkuna, kærleikann og gleðina

Hafi þið upplifað áskoranir sem tónlistar­fólk upp á síðkastið og hvað hefur verið eftir­minnilegast?

„Fyrir utan að ná 130% söfnun fyrir plötunni okkar, eru uppáhalds­minningarnar tengdar „live“ framkomum, þá sérstak­lega á Menningar­nótt þar sem stuðið var í hámarki. Þrátt fyrir að við hefðum takmarkaðan tíma til að spila bað fólk sífellt um meira. Tónleikar okkar eru fullir af orku og gleði sem kveikir líf í fólki, og þar sem það er ekki eins að upplifa tónlist í gegnum upptöku og heyrnartól, þá hvetjum við fólk að mæta á tónleika hjá okkur í febrúar, til að upplifa orkuna, kærleikann og gleðina.“

Annars segir Yara að það séu alltaf áskoranir í tónlistar­bransanum. „Heims­faraldurinn hefur ekki gert okkur auðvelt fyrir að skipuleggja tónleika­ferðalög og tónleika. Auk þess erum við að leita eftir útflutnings- og útgáfu­tækifærum, sem er erfitt þegar hljóm­sveitin passar ekki inn í rammann sem útflutnings­fyrirtækin eru að leita að.“

Tónlistin leiðir inn suðræna, afríska veröld

„Við erum að vinna í tónlistar­myndböndum fyrir lagið sem nú þegar er komið út, Ástin mín, og lagið sem kom út 17. desember, Lifa lengur. Einnig munum við gefa út tvö önnur lög af plötunni á streymis­veitur, annað nú í janúar og hitt í febrúar, ef ég man rétt.

Við viljum þakka öllum sem trúðu á okkur og styrktu okkur í gegnum Karolina Fund, þið voruð þau fyrstu sem trúðuð á okkur og gerðuð þetta allt mögulegt. Fyrir ykkur sem þekkið okkur ekki, en laðist að framandi töktum, þá erum við hér. Og með tónlistinni munum við leiða ykkur í suðræna, afríska veröld. Fylgið okkur á samfélags­miðlum, undir @issamweraband á Instagram og Facebook, og á Spotify undir nafninu Issamwera svo þið missið ekki af neinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá