Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Brynja Dan, oddviti Framsóknarmanna í Garðabæ: Einhvern veginn er maður alltaf að sigra sjálfan sig

Brynja Dan í framboði Ljósmyndari: Aldís Páls.
Brynja Dan í fram­boði Ljós­mynd­ari: Aldís Páls. Mynd: Aldís Pálsdóttir

„Það væri algjör draumur að ná inn í bæjar­stjórn og það er auðvitað bara markmiðið til þess að geta haft áhrif á nærumhverfið mitt. Svo ég mun hlaupa eins hratt og ég get þar til klukkan slær 22 á laugardags­kvöldið,“ segir Brynja Dan Gunnars­dóttir, oddviti Fram­sóknarmanna í Garðabæ.
Það styttist í kosningar. Hvernig hafa síðustu dagar verið? „Þeir hafa verið alveg ofsalega
skemmtilegir; ég neita því ekki að það er komin þreyta í mann en loka­metrarnir eru samt
skemmtilegastir. Ég er umkringd svo öflugu liði að það er ekki annað hægt en að hafa gaman og njóta ferða­lagsins.“

Fólk spyr líka hvað við getum gert betur fyrir eldra fólk.

Hvað brennur helst á fólki sem hún hittir á kosninga­fundum? Hvað er fólk helst ánægt með og hverju vill fólk helst breyta? „Það eru kannski þessir hver­dagslegu hlutir sem fólk spáir í eins og til dæmis hvernig sundlaug verður byggð í Urriða­holti en auðvitað líka bara hvað við ætlum að gera fyrir barna­fjölskyldur; hvernig við ætlum að létta undir þessum oft mest krefjandi árum. Einnig skipta samgöngumál fólk miklu.

Fólk spyr líka hvað við getum gert betur fyrir eldra fólk og það þarf að efla og styrkja heima­þjónustuna svo fólk geti elst með reisn heima hjá sér svo lengi sem það kýs svo. Auðvitað eru svo húsnæðis­málin líka ofarlega á lista og við þurfum að byggja fjöl­breytt og geta tekið á móti öllum hópum. Svo finnst mér persónu­lega vanta smá svona stemmningu, ég væri til í að sjá einhvern svona fjölskyldu­garð þar sem við getum komið saman og bara verið; mögulega með matar­vagna á sumrin og lifandi tónlist og svona komið saman og verið úti og notið samver­unnar.“

Brynja segir að samvinna og liðsandi komi fyrst upp í hugann þegar hún er spurð hvað hún sé búin að læra af að taka þátt í kosninga­baráttu sem og það að stökkva út í djúpu laugina og synda. „Maður þarf að setja sig inn í alls konar málefni og einhvern veginn er maður alltaf að sigra sjálfan sig.“

Hvað hefur verið erfiðast í kosninga­baráttunni og hvað er eftir­minnilegast?
„Bara hvað þetta er dásam­legur hópur og reyndar skelltum við í eitt mjög skemmtilegt og
fyndið myndband; það er um að gera að hafa smágaman líka svona í lokin og flippa aðeins.“

Við erum ekki öll eins og með mis­mun­andi þarfir.

Brynja segir að það að hafa mögulega áhrif til góðs og að geta mögulega breytt samfélaginu til hins betra sé það sem gefi sér við að gefa kost á sér og vilja vinna að áherslu­málum sínum. „Það er besta tilfinningin og svo gefandi.“ Og hver eru áherslu­málin? „Við viljum barnvænt samfélag, létta undir með barna­fjölskyldum og hlúa að börnunum okkar sem eru framtíðin. Við viljum fara í stórátak í lýðheilsu og forvörnum bæði fyrir unga sem aldna, við viljum byggja fjöl­breytt húsnæði og að það sé sama þjónustu­stig alls staðar í Garðabæ. Svo tölum við fyrir samvinnu og skynsömum lausnum. Ég vil að Garðabær sé sveigjanlegur og geti tekið á móti öllum; við erum ekki öll eins og með mismun­andi þarfir.“
Framsóknar­flokkurinn. Hvers vegna ákvað Brynja að gefa kost á sér fyrir Framsókn? „Þetta
er miðju­flokkur og í honum fæ ég að vera nákvæmlega eins og ég er. Allir hafa rými til að
vera þeir sjálfir og við erum eins mörg og við erum misjöfn.“

Þarft verkefni
Brynja segir að það að verða móðir og að missa foreldra sína ung sé það sem hafi mótað sig mest í lífinu. „Þetta tvennt er eitthvað sem breytir manni að eilífu og þroskar mann á núll einni.“ Hún talaði einmitt meðal annars um sorgina í helgar­viðtali Mannlífs í fyrravor. Það viðtal má lesa hér.

Þetta tók mig út úr skel­inni minni.

Þar segir meðal annars: „Missir mótar mann alltaf en svo er bara að velja hvernig það mótar mann. Þetta gerði mig sjálf­stæðari, sterkari og ákveðnari en um leið, hrædda en auðmjúka fyrir lífinu. Þetta tók mig út úr skelinni minni og ég neyddist til þess að taka pláss, hafa hátt og gera mitt besta til þess að nýta það til góðs. Sorgin er svo fallegt fyrirbæri eins skringi­lega og það hljómar. Þessar hráu tilfinningar neyða mann til að horfast í augu við sjálfan sig og velja hvernig maður ætlar að nýta hana sem kraft. Mér finnst vera svo mikilvægt að leyfa sér að finna allar tilfinningarnar. Hver og einn syrgir á sinn hátt og engin leið er réttari en önnur. Það er samt þannig að maður er oft svolítið að syrgja fram­tíðina svo það er ný sorg sem fylgir hverju skrefi. Mamma og pabbi voru ekki hér þegar ég eignaðist barn, þau sáu mig ekki útskrifast, þau verða ekki til staðar ef ég gifti mig einn daginn og hver mun þá leiða mig upp að altarinu? Svo eru þau einfald­lega að missa af barna­börnunum sínum og því sem maður er stoltastur af.“

Áfallið og sorgin hefur áhrif á Brynju sem stjórn­málamann og segir hún að svo sé sérstak­lega þegar unnið er að málefnum barna. „Ég er einmitt að fara að leiða starfshóp um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna og ég er svo þakklát fyrir það tækifæri. Þetta verkefni er svo þarft og ég hlakka mikið til að kljást við þetta verkefni með öllu því fagfólki sem mun skipa hópinn með mér.“

Brynja hefur undan­farin ár verið einn af eigendum Extra­loppunnar þar sem notuð föt eru seld. Hvað gerir hún svo í frítímanum? Hver eru áhuga­málin? „Þau eru aðallega bara
að hanga með vinum. Annars elska ég að smakka nýtt nammi ef það getur talist sem
áhugamál. Svo reyni ég að hreyfa mig eitthvað af og til þó það gangi brösug­lega núna í
kosninga­baráttunni. Ég elska að ferðast, hitta góða vini og spila og svo auðvitað er alltaf
gaman að ferðast og skapa minningar. Svo er alltaf gaman að skella sér á skíði á veturna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur