Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

María Gomez flutti til Íslands fimm ára gömul: „Ég hef alltaf verið mjög lituð af Spáni„

María Gomez ferðamála­fræðingur hefur undan­farin ár haldið úti síðunni paz.is auk þess að vera virk á Instagram, @ paz.is, og er þar með þúsundir fylgjendur. Á paz.is birtir María meðal annars uppskriftir að gómsætum réttum sem sumir eru frá ættingjum hennar á Spáni en María er hálf­spænsk. Einfaldar uppskriftir eru vinsælastar. Í nýju tímariti Víns og Matar er hægt að lesa viðtalið í heild sinni.

María Gomez bjó ásamt foreldrum sínum á Spáni til fimm ára aldurs og bjó fjöl­skyldan í Gerona-héraði á Costa Brava-ströndinni og byrjaði hún þar í skóla fjögurra ára gömul þar sem var kennt á katalónsku. Foreldrar hennar skildu síðan og flutti María með móður sinni til Íslands þegar hún var fimm ára. Hún segist þá hafa skilið íslensku en ekki talað tungu­málið en hún svaraði alltaf móður sinni á spænsku. Hún var hins vegar fljót að ná tökum á íslensk­unni eftir að mæðgurnar fluttu til Íslands.

Ljósmynd til vinstri: Kazuma Takigawa – Ljósmynd til hægri: María Gomez

„Ég týndi þá spænsk­unni svolítið þar til það var farið að senda mig út eina til Spánar þegar ég var 10 ára og þá lærði ég spænskuna upp á nýtt. Ég hef alltaf verið mjög lituð af Spáni. Bæði er ég mjög lík fjöl­skyldunni minni á Spáni og ég hef alltaf haldið góðu sambandi við hana og heimsótti hana alltaf einu sinni á ári sem barn.“Hún er ættuð frá Granada-héraði í Andalúsíu og er föður­fjölskyldan frá litlu fjalla­þorpi í Sierra Nevada-fjöllunum, Lugros. Amma hennar og faðir eru látin, en hann lést fyrir þremur árum, en í þorpinu býr ennþá ein föður­systir Maríu og fjölmargir ættingjar en þorpið er mjög lítið, og eru íbúar einungis rúmlega 300, og byggt upp á nokkrum ættum. María á einnig föður­systur í Gerona-héraði og í Andorra.

„Ég var svolítið týndur unglingur og sérstak­lega kannski út af þessari blöndu sem ég er. Ég fór til pabba á hverju ári þangað til ég var 17 ára en þá flutti ég í tæpt ár út til pabba og fjöl­skyldunnar úti. Draumurinn var að geta flutt til Spánar og unnið þar,“ segir María sem á mennta­skólaárunum tók sér ársfrí frá námi og flutti til pabba síns og vann á breskum veitinga­stað á Calella-strönd á Costa Brava og segir hún að mikill skortur hafi verið á ensku­mælandi fólki.„Ég fann mig alveg þar en ég saknaði alltaf Íslands. Ég var svolítið týnd út af þessari menningar­blöndu en þetta gerði mann svolítið klofinn og tættan á tímabili. Þetta var samt góð pása frá mennta­skólanum því úti fann ég hvað ég vildi læra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni