Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Snorri hjá Livio mælir með að óuppgerð mál fari til landlæknis: „Reynum að greiða úr málum allra“

Livio
Livio

Snorri Einarsson, yfir­læknir á Livio Reykjavík, segir að stofnunin reyni ávallt að greiða úr málum allra sem til þeirra leita. Áhersla sé lögð á að reyna eftir fremsta megni að hjálpa fólki við að skilja atburði og ferli ef það upplifi vafa. Hann segir það koma fyrir að útkljá þurfi mál hjá landlækni en að sem betur fer leysist slíkt yfirleitt farsæl­lega.

Blaða­maður Mannlífs hafði samband við Snorra vegna frásagnar hjónanna Gunnars og Hlédísar. Snorri er framkvæmda­stjóri, yfir­læknir og einn af stofn­endum Livio Reykjavík. Livio Reykjavík opnaði árið 2016, en starfsemin var áður rekin á sömu kennitölu undir nafninu Art Medica. Það var hjá Art Medica sem hjónin fóru í sína tækni­frjóvgunar­meðferð. Snorri kom ekki að stofnun Art Medica heldur hóf hann þar störf löngu síðar, árið 2013.

Snorri er fæðinga- og kven­sjúkdóma­læknir sem hefur starfað á sviði ófrjósemis­lækninga síðan árið 2006.

Vegna laga og reglna sem gilda um trúnað milli lækna og sjúklinga gat Snorri ekki staðfest fundi eða önnur samskipti við þau Gunnar og Hlédísi. Hann féllst hins vegar á að ræða almenn mál út frá skálduðum dæmum blaða­manns.

Eðlileg krafa fólks

Þegar Snorri er spurður út í tilfelli þar sem par vill meina að þeim hafi ekki verið sagt satt og rétt frá fjölda bæði eggja og fóstur­vísa þegar þau voru í meðferð á sínum tíma, og meiningar þeirra um horfna fóstur­vísa, undir­strikar Snorri að honum sé ekki heimilt að ræða málefni einstakra sjúklinga.

„Það sem ég get aftur á móti sagt er að auðvitað reynum við að greiða úr málum allra þeirra sem til okkar leita og útskýra mál sem er kannski ekkert endilega auðvelt að skilja sem leikmaður. Auðvitað reynum við að verða við því. Það er bara, eins og ég sagði áðan, eðlilegur réttur og eðlileg krafa fólks að skilja í hverju meðferð þeirra hefur falist og hvernig hlutir hafa farið. Við reynum það bara af fremsta megni, að koma til móts við fólk og útskýra. Nú ef það næst ekki lending eða fólk telur að þeirra mál séu óuppgerð og óleyst, þá bendum við fólki á að leita þeirra leiða sem eru til staðar í kerfinu til þess að fá úr þeim skorið. Eins og til dæmis að fara með formlegar kvartanir til land­læknis­embættisins. Það auðvitað gerist að það þurfi að útkljá mál þar og sem betur fer þá leysist það nú oftast farsæl­lega. Fólk skilur hvað fram hefur farið og hvernig hlutir hafa orðið eins og þeir hafa orðið.“

Snorri segir að það sé ekki alltaf auðvelt fyrir almenna leikmenn að skilja gögn úr sjúkra­skrám er varða tækni­frjóvgunar­meðferðir. „Ef þú yrðir í þeirri stöðu að þessi grunur vaknaði þá myndi ég náttúru­lega bara mæla með því að þú leitaðir þér skýringa og samtals hjá þeim sem veitti þér þjónustuna, til þess að reyna að skilja hvað fram hefur farið. Ég get alveg sagt það fullum fetum að slíkum umleitunum myndum við taka vel og reyna að setjast niður með fólki og skýra hvað fram hefur farið.“

Viðtalið við Snorra má í heild sinni lesa í nýjasta tímariti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá