Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Barir innsiglaðir – Þyngsti dómur sem fallið hefur í fíkniefnamáli hér á landi

Gamli enski barinn í Hafnarfirði
Gamli enski bar­inn í Hafn­ar­firði

Tíu voru hand­teknir í tengslum við umfangs­mikla rannsókn á fíkniefna­lagabrotum og peninga­þvætti og fimm þeirra úrskurðaðir í gæslu­varðhald, allt íslenskir karlmenn. Um fjörutíu kíló af kannabis­efnum voru haldlögð um helgina en Margeir Sveinsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn hjá miðlægri deild, hefur ekki viljað tjá sig nánar um málið.

Lögregla hefur framkvæmt húsleit víða síðustu daga, meðal annars á öldur­húsum og í hesthúsum og lagt hald á tugi kílóa af fíkni­efnum. Lögregla framkvæmdi meðal annars húsleit á Gamla enska barnum í Hafnar­firði, stað sem einn sakborninganna rekur og innsiglaði staðinn fram yfir helgi.

Staðurinn er rekinn af Ólafi Ágústi Hraundal en hann var einn sakborninga í Stóra fíkniefna­málinu svokallaða sem var mjög áberandi um aldamótin.  Hann hlaut þá einn þyngsta dóm sem fallið hafði í fíkniefna­máli hér á landi, eða níu ár. Fjórtán voru dæmdir í málinu. Ólafur Ágúst var hand­tekinn eftir að lögregla veitti honum eftirför á Reykja­nesbraut á föstudag.

Húsleit hefur verið gerð mun víðar í tengslum við málið, meðal annars í iðnaðar- og heima­húsum, í hesthúsum, og á barnum Catalinu í Hamraborg, þar sem Ólafur Ágúst starfaði sem lausa­maður, að sögn eiganda staðarins. Hann segist vera í algjör áfalli og tekur fram að ekkert hafi fundist á staðnum og að enginn hinna grunuðu hafi komið að rekstri staðarins með neinum hætti. Þar sé allt uppi á borðum og segist harma að staðurinn hafi verið dreginn inn í málið.

Starfs­fólk Gamla enska barsins í Hafnar­firði sem frétta­stofa RÚV ræddi við í dag sagði það hafa komið sér verulega á óvart þegar lögreglu bar að garði, engan hefði grunað að nokkuð misjafnt hefði átt sér stað – en drógu það mjög í efa að staðurinn sjálfur tengdist málinu með neinum hætti. Lögregla hefði innsiglað staðinn og leitað í hverjum króki og kima og ekki gefið heimild til þess að opna staðinn að nýju fyrr en í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá