Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Húsvíkingar með undirskriftarlista til stuðnings gerandanum – Fann fyrir andúð og slæmu viðmóti

Húsavíkurkirkja Mynd / Skjáskot
Húsa­vík­ur­kirkja Mynd / Skjáskot

Aðgerða­hópurinn Öfgar héldu erindi á Kynja­þingi á laugar­daginn síðasta í Háskóla Íslands og fjallaði Mannlíf um þingið. Saga þolenda – hin raun­verulega slaufun, hét erindið og fjallaði það um slaufunarmenningu og sögu þolenda í gegnum aldirnar.

Erindi Öfga var fjöl­breytt og fróðlegt og þar á meðal var rætt um svokallaða Húsa­víkurmálið. Með Húsa­víkurmálinu er átt við þegar þolandi kynferðis­ofbeldis mátti þola slaufun.

Stúlkan fór að finna fyrir andúð og slæmu viðmóti

Árið 1999 var 17 ára stúlku nauðgað á Húsavík. Stúlkan leitaði strax til lögreglu eftir nauðgunina og lagði fram kæru daginn eftir.

Gerandinn ýmist neitaði eða játaði á sig brotið í skýrslu­tökum lögreglu en fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa kannski haft þá á tilfinningunni að stúlkan væri ekki til í þetta. Maðurinn var sakfelldur fyrir nauðgun og dæmdur í 15 mánaða fangelsi.

Eftir að dómurinn féll leið ekki á löngu þar til stúlkan fór að finn fyrir andúð og slæmu viðmóti frá stórum hópi fólks í bænum. Fólk horfði undan þegar það mætti henni úti á götu og heilsaði henni ekki þegar hún afgreiddi það í verslun. Hún fékk nafnlaus sms með hótunum og ljótum orðum. Þegar hún var úti að skemmta sér með vinum sínum gekk fólk upp að henni og sagði henni að hún væri ógeðsleg og vinum hennar að passa sig á henni.

Þolendur kynferðisofbeldis skyldu varast að leita réttar síns

Ári eftir nauðgunina var dómurinn stað­festur í Hæstarétti. Eftir þann dóm birtu foreldrar stúlkunnar tilkynningu í bæjar­blaðinu þess efnis að skila­boðin til dóttur þeirra sýndu svart á hvítu að þolendur kynferðis­ofbeldis skyldu varast að leita réttar síns. Aðrar stúlkur sem urðu fyrir kynferðis­ofbeldi á svipuðum tíma hafa haft samband við hana og sagt að þær hafi ekki þorað að kæra vegna meðferðarinnar sem hún fékk. Þær þorðu ekki að kæra af hræðslu við bæjar­félagið.

Stúlkan flutti aldrei aftur til Húsavíkur eftir þetta og kom sáralítið til bæjarins því henni leið svo illa þar. Hún kláraði mennta­skóla í Reykjavík og flutti síðan til Noregs þar sem hún býr enn og starfar sem læknir. Hún segir að þegar hún heimsæki Húsavík upplifi hún aldrei þá tilfinningu að vera komin heim, þ.e. þessa ljúfu heimkomu­tilfinningu sem fyllir flesta þá sem heimsækja æsku­slóðir sínar.

Undirskriftarlisti til stuðnings geranda hennar

Á 18 ára afmælis­daginn sinn fékk stúlkan síðan símtal frá prestinum í bænum sem sagði henni að um bæinn gengi undir­skriftar­listi til stuðnings geranda hennar.

Ekki er vitað hver stóð að baki þessu framtaki en vitað er að það var með vitund og vilja hins dæmda og fjöl­skyldu hans. 113 manns skrifuðu undir stuðnings­yfir­lýsinguna. Var það fólk á öllum aldri og meðal annars fólk sem stúlkan og fjöl­skyldan hennar álitu vera vini sína. Yfir­lýsingin og listinn voru síðan birt í bæjar­blaðinu. Þegar blaðið kom út var stúlkan flutt til Reykja­víkur, en fjöl­skylda hennar upplifði andúðina á götum bæjarins.

Fólk á listanum veitti fjöl­miðlum viðtöl og sögðu þar sumir að þeim fyndist að strákurinn ætti að njóta vafans.

„Ég trúi því ekki að hann hafi gert þetta, hann er bara ekki þannig strákur,“ sagði einn stuðnings­maður.

Sagt var að pilturinn hefði alveg eins getað kært stúlkuna fyrir nauðgun, þetta hefði verið spurning um hvort þeirra yrði á undan. Sagt var að hún hefði kært nauðgun til að forðast vandræði hjá kærasta sínum. En vinkona stúlkunnar kom að henni og gerandanum og fylgdi henni heim til kærasta síns. Þau sem skrifuðu undir stuðnings­yfir­lýsinguna þekktu málið bara af sögu­sögnum og höfðu líklega ekki lesið dóminn.

HÉR er hægt að hlusta á erindið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá