Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sá mann á svölunum með langa byssu: „Hann ætlaði augljóslega að drepa okkur“

Matheuz Dariusz, bifvélavirki og faðir. Hann varð ásamt syni sínum fyrir skotárás í gær. Mynd/skjáskot. Rúv
Matheuz Dariusz, bif­véla­virki og faðir. Hann varð ásamt syni sínum fyrir skotárás í gær. Mynd/skjá­skot. Rúv

„Hann ætlaði augljós­lega að drepa okkur,“ segir maður sem ásamt syni sínum varð fyrir skotárás fyrir utan leikskóla í Hafnar­firði í gær í kvöld­fréttum RÚV. Hann þakkar guði fyrir að þeir séu á lífi.

Samninga­maður lögreglunnar sem ræddi við skotmannin, segir að: „útkallið hefði auðveldlega getað farið illa.“ Vopnuð útköll vegna notkunar skotvopna voru rúmlega þrefalt fleiri í fyrra en árið 2016.

Á erfitt með að finna réttu orðin til að lýsa atburðarásinni

Gærmorguninn hófst venjulega, þegar Mateuz Dariusz fór með son sinn á leik­skólann Víðivelli í gær. Feðgarnir mættu snemma og voru að bíða eftir að leik­skólinn opnaði, þegar skotið var á bíl þeirra.

Matheus er búinn að búa á Íslandi í 11 ár, en hann er lærður bílvéla­virki og vinnur á verkstæði í Reykjavík. Hann og kona hans eiga tvö börn, dóttur sem er 1 árs og sex ára son. Hann talar bæði íslensku og ensku, en eftir árásina í gær er honum mjög brugðið og á erfitt með að finna réttu orðin til að lýsa atburða­rásinni. Jafnvel á sínu eigin móðurmáli. Hann segir að hann og sonur hans mæti alltaf 5 mínútum áður en að leik­skólinn opnar og bíði fyrir utan og ræði saman.

Sá mann á svölunum með langa byssu

„Svo heyrði ég einhvers konar smell. Fyrst hélt ég að þetta væri hljóð í bílnum, eitthvað væri bilað. Smellurinn var ekki mjög hár, en hann heyrðist vel. Nokkrum sekúndum síðar heyrði ég annan smell en hærri og fann svo gleri rigna yfir bakið og höfuðið á mér. Ég steig út úr bílnum til að sjá hvað hefði gerst – hvort einhver hefði kastað steini í bílinn eða hvað. Þá sá ég mann á svölum með langa byssu. Hann miðaði á okkur og byrjaði að hrópa: Hvað etu að gera? Hættu þessu! Ég sagðist ætla að hringja á lögregluna sem ég gerði strax. Það var enginn annar á bíla­stæðinu nema við feðgarnir. Þegar ég hrópaði hátt á hann hrökk hann við. Ég spurði hann af hverju hann væri að þessu? Hann svaraði að hann héldi að hann væri einhver glæpa­maður.“

Aðpurður hvort að skot­maðurinn hefði spurt hann að þessu, svarar hann því játandi.

Fengið mjög á 6 ára son hans

Mateuz Dariusz segir að atburðurinn hafi fengið mjög á son hans. Hann meðal annars þurft að hrópa á hann til þess að fela sig á gólfinu í bílnum. Mateuz ákvað í kjölfarið að fara með drenginn á leik­skólann til að koma honum á öruggan stað. Og ræðir svo ekkert meira við hann þangað til að hann var kominn aftur heim úr leik­skólanum.

„Við komum heim og drengurinn sagði mömmu sinni hvað hefði gerst. Hann sagði að vondur maður hefði brotið rúðuna í bílnum og pabbi hefði hrópað á hann mjög hátt. Hann veit hvað kom fyrir, að maðurinn skaut á bílinn okkar og braut rúðuna. Þannig skilur hann atburðinn. Hann skilur ekki enn að maðurinn reyndi augljós­lega að drepa okkur. “

Þau hafa fengið mikið af hughreystandi skila­boðum í kjölfarið, en Mateuz segir að hann sé ennþá í sjokki og geti ekki trúað því að svona nokkuð gæti gerst hér.

Árásar­maðurinn var vistaður á stofnun í dag. Samninga­menn töluðu við manninn í 5 tíma í gær og var hann í kjölfarið vistaður á viðeigandi stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá