Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Heimamenn ræða aðgerðir vegna Vatnsnesvegar: „Sagði Innviðaráðherra ekki örugglega àfram veginn?“

Versti vegur landsins?
Versti vegur lands­ins? Mynd: hunathing.is

Guðrún Ósk Steinbjörns­dóttir, aðstoðar­skólastjóri og bóndi,  skrifaði færslu á Facebook sem vakið hefur athygli. Snýr færslan að hriklalegum vegakafla í Húnaþingi vestra.

Guðrún Ósk hefur um árabil verið í hópi þeirra sem kvarað hafa undan Vatns­nesvegi en um hann þurfa börn á svæðinu að keyra á leið í skólann á veturnar. Vegurinn er einn sá allra versti á landinu öllu en lengi hefur verið talað um úrbætur en enn bólar ekki á þeim. Færsla Guðrúnar Óskar er hér að neðan:

„Það verður gaman fyrir skóla­börnin að ferðast um Vatns­nesveginn í haust. Sagði Innviða­ráðherra ekki örugglega àfram veginn? Honum er boðið hér með að keyra þennan veg bæði áfram og aftur á bak ef hann vill.

Ég vil árétta enn á ný að samkvæmt nýrri samgöngu­áætlun eiga börn eftir að keyra þennan veg alla sína skóla­göngu áður en til gagngerra endurbóta kemur.“

Eins og sjá má er smá veg að sjá þarna en aðal­lega holur.

Í samtali við Mannlíf sagði Guðrún Ósk að hún eigi sjálf börn sem þurfa að ferðast þennan veg en þó séu þau heppnari en mörg önnur því þau búi nær skólanum.

„Frá mínu heimili ferðast börn bæði í leik- og grunn­skóla. Ég bý svo vel að það er ekki nema 16 km sem þau þurfa að ferðast en nokkur börn þurfa að fara mun lengri vega­lengdir en það. Á góðum degi er ég um 13 mínútur að keyra kaflann þar sem er malar­vegur en sá tími tvöfaldast þegar vegurinn er í slæmu standi. Það þýðir að þau börn sem þurfa að keyra hvað lengsta vegalengd fara yfir þau tímamörk sem þeim er, lögum samkvæmt, heimilt að ferðast í bíl til að komast í skóla. Þess fyrir utan er ferðin ömurleg fyrir þau því bíllinn hristist alla leiðina með tilheyrandi óþægindum.“

Guðrún Ósk segir að heimamenn séu farnir að ræða mögulegar mótmæla­aðgerðir til að knýja fram breytingar.

„Núna hefur komið upp umræða að halda börnunum heima eða hreinlega standa fyrir aðgerðum þar sem öðrum en heima­mönnum verður meinað að keyra um veginn. Við vitum ekki alveg hvað við getum gert til þess að stjórmálamenn taki til gagngerar endur­skoðunar forgangs­röðun í vegamálum.“

Segir hún skilja það að víða þurfi að bæta úr í vegakerfi landsins en þarna sé um að ræða börn sem þurfi að lifa við þessa hörmung.

„Við erum svo sannarlega ekki þau einu sem erum að bíða eftir því að fá úrbætur en á meðan horfum við upp á uppbyggingu á vegum þar sem ekki er sami umferðar­þungi og hjá okkur og ekki börn sem þurfa að komast leiðar sinnar. Við viljum sjá að börnin okkar sem eru núna að byrja í leik- og grunn­skóla eigi von um að keyra við viðunandi aðstæður en ekki að þessi hörmung bíði þeirra alla þeirra skóla­göngu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp