Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innsti hringur Britney óttast um geðheilsu hennar – Samþykkti að hitta lækni

Britney Spears og fyrrverandi eiginmaður hennar, Sam Asghari.
Britney Spears og fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar, Sam Asghari. Mynd: Britney Spears/Instagram

Einstaklingar í innsta hring popp­dívunnar Britney Spears, hafa vaxandi áhyggjur af geðheilsu söng­konunnar.

Samkvæmt TMZ hefur hin 41 árs gamla söngkona verið að ströggla við geðheilsu sína undan­farið og verið að taka lyf sem „hafa örvandi áhrif á hana.“

Heimildir herma að Britney hafi verið að „missa það algjör­lega“ undan­farið og að hún sé ekki að taka þau lyf sem gera hana stöðugri. Hefur hegðun hennar orðið til þess að sumir úr hennar innsta hring hafa íhugað inngrip.

TMZ segir einnig að gerð hafi verið áætlun þar sem fara átti með Britney í leigu­húsnæði í Los Angeles-borgg þar sem eigin­maður hennar, Sam Asghari, umboðs­maður hennar, inngrips­sérfræðingur og læknar myndu bíða og gera tilraun til að sannfæra söng­konuna um að fá hjálp. Sú áætlun fór hins vegar í vaskinn þegar Britney komst að þessu en þó samþykkti hún að hitta lækni þann 8 febrúar en að heimildar­maður TMZ sagði það hafa „gengið vel.“

Í janúar vakti það athygli þegar Grammy-verðlauna­hafinn Britney fór út að borða með eigin­manninum á veitinga­stað í Los Angeles-borg. Í mynd­skeiði sem TMZ birti sést sönkonan sitja ein við borð, talandi samhengis­laust út í loftið.

Eigin­maður hennar varði hana síðar og sagði atvikið „pirrandi.“

„Fólk verður oft of æst við að sjá konu mína,“ sagði hann ljós­myndara þann 16. janúar. „Þegar þú sest niður til að fá þér að borða og fólk rífur upp mynda­vélarnar og byrjar að taka upp, þá er það vanvirðing.“

Lögregluheimsókn

Þá fengu margir fyrir hjartað þegar lögreglan bankaði upp á hjá Britney til að athuga með velferð hennar. Talsmaður lögreglunnar í Ventura-sýslu í Los Angeles, sagði í viðtali við People að lögreglu­menn hafi fengið fjöldi símtala frá aðdáendum hennar sem höfðu áhyggjur eftir að Britney eyddi út Instagram-reiknigi sínum.

„Til vonar og varar fórum við heim til hennar til að athuga með velferð hennar og fengum það staðfest að hún var örugg og í engri hættu.“

Britney svaraði heimsókn lögreglu á Twitter en þar sagði hún heim­sóknina hafa verið framkvæmd „vegna einhverra símaata.“

Þá talaði hún einnig um atvikið á veitinga­staðnum. „Þetta leit út eins og það væri verið að gaslýsa mig og níðast á, þegar atvikið komst í fréttirnar en þarna er verið að sýna mig í lélegu og ósann­gjörnu ljósi, af fjöl­miðlum. Á þessum tíma­punkti í mínu lífi vona ég að almenningur og aðdáendur mínir, sem mér þykir svo vænt um, geti sýnt einkalífi mínu virðingu framvegis.“

Fyrir rúmu ári síðan fékk Britney aftur vald yfir eigin líf eftir að hún var svipt sjálfræði fyrir 13 árum og faðir hennar gerður að lögráða­manni hennar.

„Ég er svo stolt að henni,“ sagði lögmaður hennar, Mathew Rosengart á þeim tíma. „Ég þakka henni. Ég þakka henni fyrir hugregkki hennar og kraft… Við trúum því að þetta hafi verið rétta niður­staðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt