Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Grasalæknirinn Ingeborg:„Samfélagið búið gjörsamlega að hanna sig í kringum hormónahringrás karla.“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er engin önnur en grasa­læknirinn Ingeborg Andersen. Ingeborg lærði vest­rænar grasa­lækn­ing­ar við Uni­versity of West­minster í London. Hér er brot úr viðtalinu.

Samkvæmt Ingeborg er mjög mikið af hormónum í umhverfinu sem hafa gríðar­lega mikil áhrif á heilsu. Estrógen segir Ingeborg að megi finna í allskonar hráefnum á borð við pappír og plast ásamt matvælum. Hún nefnir í því samhengi búðar­kvittanir sem innihalda Estrógen til þess að gera pappírinn mýkri viðkomu. Hún segist varla vilja snerta kvittanir í búðum því að í raun líti hún á þetta sem mengun sem beri að forðast. 

Áhrifin sem þessir hormónar valda eru vægast sagt alvarleg en til að mynda geta konur þróað með sér allskonar sjúkdóma og karlmenn þróað með sér ófrjósemi sem er mæld í hæstu hæðum á Vestur­löndum í dag. Hún segir að í þessum efnum séu ungir menn að mælast með sæðis­framleiðslu á við 60 ára gamlan mann fyrir ekki svo mörgum árum síðan.

Ingeborg er mikið nátt­úru­barn

Ingeborg segir að menn séu að falla hratt í Testósteron fram­leiðslu, fallið eigi sér oft stað skyndi­lega og geti einkenni slíks falls oft á tíðum verið mjög alvarleg. Geta menn þá fundið fyrir þunglyndi og depurð, kraft­leysi og aukningu á líkams­þyngd sem er afar algengt. 

Ástæða lækkunar á Testósteron getur verið af völdum utan­aðkomandi hormóna eins og lýst var hér að ofan en Ingeborg sagði að mikilvægt væri að horfa í því samhengi á raun­orsakir sem geta meðal annars verið fram­leiðsla á stress­hormónum eins og Cortesol og Adrenalíni sem í raun er alltaf á kostnað Testósteróns. Þannig að með því að lifa lífinu meira í ró og forðast óþarfa stress er maður á sama tíma að stuðla að heilbrigðari hormóna­flæðis. 

„Morning glory“ kom til tals í hvað þetta varðaði, eða morgun­bónerinn eins og Gunnar kallaði það þegar karlmenn vakna með standpínu. Ingeborg sagði að morgun­standpínan væri ágætis mæli­kvarði á hvar maður væri staddur hvað heilsuna varðaði, Davíð til mikills léttis enda maður mikillar morgun­gleði.

„Það er rosalega magnað þegar við förum að líta á það hvernig samfélagið er búið gjör­samlega að hanna sig í kringum hormóna­hringrás karla. Við förum í vinnuna snemma að morgni og vinnum kannski frá níu til fimm, þegar að testósterónið er hátt, þegar við erum með mestu orkuna. Svo um þrjú, fjögur leytið fer testósterónið að minnka og þá kemur eins og kaffitími eða happy hour, alveg fullkomið fyrir karlmann sem er að missa orkuna. Og þegar testósteronið er hvað lægst er tími til að tengjast fjöl­skyldunni,“ sagði Ingeborg og bætti við að þetta sé lífstíll sem felur í sér að við endur­tökum þennan hring aftur og aftur og aftur. Gunnar spyr hvort það sé ekki gott.

„Ekki fyrir konur, því að konur eru svo allt öðruvísi verur, þær eru svo flóknar. Karlar geta alveg stundað svipaða rútinu á hverjum degi þar sem þeir eru með hormóna­hringrás sem endurtekur sig á meðan konur eru með í raun fjóra fasa í gegnum allan tíðar­hringinn.“

Í lokin færðu þau sig inn í heim getnaðar­varna og fannst Ingeborg það mikil­vægasta að í málum sem snúa að í almennri notkun hormóna­getnaðar­varna að ákvarðana­takan sé byggð á upplýstum grunni, ekki bara af því að læknirinn segir að eitthvað sé svona eða hinsegin. Ákvörðunin verði að taka út frá rann­sóknum sem viðkomandi sjálfur getur útfært aðeins með að afla sér viðeigandi upplýsinga. 

Þetta skemmtilega og fróðlega viðtal má sjá í heild sinni á spil­aranum hér fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá