Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Illugi segir sögu úr Valhöll: „Þú hjólar í útlendingamálið, ferð alveg all in“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jökulsson, fjölmiðla­maður og hlaðvarps­stjarna, skrifaði spaugilega færslu í dag sem hann kallar Saga úr hvunndagslífinu. Í færslunni gerir hann sér í hugarlund hvers vegna Jón Gunnarsson hafi ákveðið að reka úr landi fjöldi flótta­manna á næstu vikum. Leiða má að því líkum að Illugi hafi verið að grínast með færslu sinni.

Saga úr hvunndagslífinu:

Bjarni Ben var í djúpum skít, fundir á Austur­velli vikulega þar sem afsagnar hans var krafist.

Neyðar­fundur í Valhöll. Hvað er hægt að gera til að létta þrýstingi af Bjarna?

„Eigum við ekki að lansera frum­varpinu um brennivín í búðir?“ stakk Áslaug Arna upp á. „Það hefur nú oft gefist vel sem smjör­klípa.“

„Nei, það mundi ekki duga,“ sagði Bjarni, „þetta er of langt komið til að jafnvel það dugi. Við þurfum að finna eitthvað öflugra.“

Og Bjarni leit í kringum sig í ráðherra­liðinu.

„Jón!“ sagði hann höstuglega. Jón leit snöggt upp. Hann hafði verið í símanum að lesa tölvu­pósta um fasteigna­viðskipti sín í Garða­bænum.

„Já, Bjarni?“

„Þú hjólar í útlendinga­málið, ferð alveg all in. Burt með allt þetta lið! Allt verður vitlaust og allir gleyma banka­málinu.“

„Ok,“ sagði Jón. „Ég geri það. En mun ekki sú umræða verða erfiðust fyrir vini okkar í VG?“

Ráðherrarnir hlógu hæðnis­lega, allir sem einn.

Færslan hefur síðasta klukku­tímann fengið gríðar­lega mikla athygli en yfir 150 manns hefur líkað við hana og fjölmargir tjáð sig undir henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá