Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Guðrún Hulda Fossdal býður sig fram fyrir Sósíalista: „Þú hefur ekki efni á að vera pjöttuð“

Guðrún Hulda Fossdal
Guðrún Hulda Fossdal

„Mitt helsta baráttu­efni er húsnæðis­markaðurinn í Reykjavík. Ég vil bæta hann og eins er ég með mjög sterkar skoðanir á því hvernig Félags­bústaðir Reykja­víkur eru reknir,“ segir Guðrún Fossdal sem býður sig fram í 15. sæti fyrir Sósíal­ista í Reykjavík í komandi kosningum og sem segist alltaf hafa verið heit fyrir því að vera í pólitík. „Ég myndi vilja að sett yrði reglugerð sem borgar­stjórn myndi knýja á um að ríkið setti um þök á leigu; að það séu ekki bara endalaus hagnaðar­drifin leigu­fyrirtæki. Það þarf til dæmis að hætta með útboð á lóðum. Sveitar­félög eiga yfir höfuð ekki að vera með útboð þannig að sá sem borgar mest fái bestu lóðina. Við þurfum kannski að fara aftur í tíma; einhvern tímann tíðkaðist lóða­happdrætti. Ef Reykja­víkurborg byrjar að vera þannig að það sé unnið meira að því að allir eigi meiri möguleika á húsnæði þá fylgja hin sveitar­félögin.“

Það stang­ast á við stefnu Reykja­vík­ur­borgar um að fækka einka­bílum.

Guðrún Hulda segir að Sósíal­istar vilji samvinnu eins og varðandi almennings­samgöngur. „Þeir vilja vinna með Strætó í að skipuleggja ferðir. Strætó er að fækka ferðum og hækka verð en það stangast á við stefnu Reykja­víkurborgar um að fækka einka­bílum. Þetta er hluti af því sem ég vil vinna með; árskort ungmenna í Strætó hækkuðu um 60% í haust. Þarna hefði ég viljað að Reykja­víkurborg sem stærsta sveitar­félagið myndi reyna að ná í einhverja samvinnu til að koma í veg fyrir svona.“

Álag og fjárskortur

Guðrún Hulda segist vita að búið sé að stokka upp hjá Félags­bústöðum en að þar megi gera betur; sjálf býr hún í íbúð á vegum Félags­bústaða. „Margir leigjendur Félags­bústaða upplifa enn að þeir séu ekki einu sinni núll þjóðfélags­þegnar heldur fyrir neðan það þegar þeir hafa beðið um að eitthvað yrði gert. Fólk á ekki að þurfa að marg­hringja og betla eftir því að fá eitthvað lagað. Það þarf að breyta áherslum þar. Reynsla mín af þessu er ekki góð og framkoma starfs­fólks hefur ekki alltaf verið góð. Enginn myndi held ég sætta sig við sum tilsvörin sem ég hef fengið. Það voru til dæmis brunagöt á eldhús­bekkjunum þegar ég flutti inn 2008 og spurði ég starfs­mann hvort það hafi ekki átt að skipta um þetta. Ég fékk svarið „þú hefur ekki efni á að vera pjöttuð“.“

Þögn.

„Það var svarið sem ég fékk. Ég spurði manninn hvort hann ætti konu. Hann sagði svo vera. Þá spurði ég hvort hann myndi tala svona við konuna sína. Hann sagði að það myndi hann ekki gera. Þá sagði ég að hann skyldi ekki tala svona við mig.

Enn þarf maður að marg­hringja til þess að eitt­hvað sé gert

Það er búin að vera mikil breyting hvað þetta varðar en enn þarf maður að marg­hringja til þess að eitthvað sé gert. Ég held að þetta tengist álagi á starfs­menn; ég held að það sé ekki nógu mikill mannafli til að takast á við allt sem þarf að gera þarna. Auðvitað tengist þetta líka fjár­skorti en ég held að þetta sé samt aðallega vegna álags á starfs­fólk. Svo á leiga á félags­legu húsnæði ekki að vera vísitölu­tengd og það er líka svolítið hitamál hjá mér.“

Gefur aukakrónurnar

Guðrún Hulda segist hafa skráð sig í Sósíalista­flokkinn við stofnun hans. „Ég skráð mig upphaf­lega í flokkinn af því að hann leggur áherslu á jöfnuð. Sósíalista­flokkurinn gengur út á að allir eigi sömu möguleika og að þeir sem eiga erfiðara með að nýta mögu­leikana fái þá hjálp.“ Hún segir að það hafi síðan verið Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, sem er í oddvita­sæti flokksins fyrir komandi kosningar, sem hafi beðið sig um að gefa kost á sér. „Sanna er nátt­úrlega búin að sanna það að við venjulega fólkið úti í bæ getum verið þarna. Ég hefði ekki haft trú á að maður gæti þetta nema af því að ég er búin að sjá hvað hún er búin að vinna ofboðs­lega gott starf.

Það að gefa kost á mér gefur mér tækifæri til að hafa áhrif og láta í mér heyra sem og að hlusta á aðra; þetta fær mig til að hugsa, velta hlutunum fyrir mér og hafa skoðanir. Það gefur mér mikið gildi í lífinu að reyna að sjá hlutina út frá öðru sjónar­horni.“

Ég hefði viljað að fleiri hefðu það gott.

Misskipting auðs kemur til tals. „Ég er nátt­úrlega ekki hlynnt þessari misskiptingu og ég er ekki hlynnt því eins og húsnæðis­markaðurinn er að það séu örfáir einstaklingar sem geti verið að kaupa upp eignir og haldið þeim frá sölu til þess að hækka markaðinn. Ég hefði viljað sjá einhverjar breytingar þar líka. Ég er ekki gröm eða sár út í þá sem hafa það gott en ég hefði viljað að fleiri hefðu það gott. Sumir sem eiga fullt af peningum hafa lagt hart að sér; aðrir fá þá upp í hendurnar. Það er hins vegar ekki mitt að meta hverjir það eru sem hafa ekki þurft að hafa fyrir hlutunum. Það er hins vegar ekki réttlátt að börn okkar sem erum í félags­legu húsnæði sem öryrkjar og/eða lágtekju­fólk þurfi að fara að heiman þegar þau eru 18 ára en daginn sem barnið verður 18 ára má það ekki lengur vera skráð heima hjá sér vegna þess að þá þarf að fara að borga hærri leigu. Þá þyrfti barnið að fara að vinna með skóla.“

Guðrún Hulda vill hafa áhrif til góðs í samfélaginu sem myndi nýtast þeim sem þurfa á því að halda. „Það hefur alltaf verið framtíðar­draumur minn og markmið að geta hjálpað. Ég nota hverja einustu aukakrónu sem ég finn til að styrkja einhver lítil félög ef ég mögulega get. Ég hef ekki þörf fyrir að vera kosin í borgar­stjórn en ég hef þörf fyrir að hafa áhrif á hvernig stefnan er mótuð og geta kannski unnið baka til.“

Einelti og nauðganir

Nei, líf Guðrúnar Huldu hefur ekki alltaf verið dans á rósum, enda rósir með þyrna sem stinga. Mannlíf birti viðtal við hana í fyrra, sem hægt er að lesa hér. Þar kemur fram: Einelti alla grunn­skóla­gönguna, neysla, nauðganir, meðferð, ofþyngd og átröskun, ADHD og sjálfs­ofnæmis­sjúk­dómurinn rauðir úlfar.

Hún byrjaði að sniffa í kringum fermingar­aldur. Byrjaði að drekka tæplega 16 ára.

„Ég man eftir fyrsta fylleríinu. Ég fann alsælu í líkamanum og ég var mjög fljót að þróa þetta. Ég fór hratt niður á botninn og fór í fyrstu meðferðina 19 ára eftir að hafa verið í neyslu og drykkju í margar vikur. Ég gat ekki meira.“ Hún segist aðallega hafa verið í sýru og hassi. „Þessi örvandi efni gerðu ekkert annað fyrir mig en að róa mig.“ Guðrún er spurð hvort hún sé með ADHD og hún segir svo vera. „Ég skildi ekki hvað fólk fékk út úr því að taka spítt.“

Ég kenndi sjálfri mér um þetta.

Hún segir að á neyslu­tímabilinu hafi hún upplifað sömu hluti og margar konur lenda í sem eru í neyslu. „Maður upplifði ofbeldi. Maður upplifði nauðgun.“ Hún segir að sér hafi nokkrum sinnum verið nauðgað og að hún líti á það ofbeldi sem hluta af fortíðinni. Hún hvorki kærði mennina sem nauðguðu sér né lét skoða sig hjá lækni í kjölfarið. „Ég kenndi sjálfri mér um þetta. Það nennti engin kona að fá þessar spurninga: Hvað varstu búin að drekka mikið? Hvernig varstu klædd? Hvað varstu að gera? Gafstu honum undir fótinn?“

Botninum var svo náð í neyslunni og hún fór í enn eina meðferðina þegar hún var 23 ára og hefur verið edrú síðan.

Í viðtalinu í fyrra sagði hún meðal annars: „Jú, Guðrún segist vera Pollýanna í sér; að hún sjái almennt jákvæðu hliðarnar á málunum. Hún er óvinnufær vegna rauðu úlfanna. Hún kláraði á sínum tíma skrifstofu­braut MK og langar til að vinna við bókhald. „Mig langar til að upplifa að maður sé að gera eitthvað sem skiptir máli fyrir samfélagið; að maður sé að leggja sitt af mörkum.“

Í dag, í maí 2022, er hún komin þangað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur