Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Eiginmaður Nancy Palosi barinn í höfuðið með hamri: „Fjölskyldan biður um svigrúm á þessari stundu“

Paul og Nancy
Paul og Nancy

Eigin­maður Nancy Pelosi, forseta fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings varð fyrir ofbeldis­fullri árás í innbroti á heimili þeirra hjóna í Kaliforníu.

Paul Pelosi, sem er 82 ára, hefur verið fluttur á sjúkrahús en búist er við því að hann muni ná sér að fullu, samkvæmt talsmanni hans.

Hinn grunaði, sem ekki hefur verið nafn­greindur, er í haldi lögreglunnar en ástæða árásarinnar er ekki komin á hreint.

Nancy var ekki á heimili þeirra hjóna í San Francisco þegar innbrotið varð í morgun.

„Forseti fulltrúa­deildarinnar og fjöl­skylda hennar eru þakklát fyrstu viðbragðs­aðilunum og heilbrigðis­starfs­fólkinu sem kom að málinu og biður um svigrúm á þessari stundu,“ sagði talsmaður öldunga­ráðs Demókrata í tilkynningu í dag.

Hinn meinti árásar­maður notaði hamar í árásinni, samkvæmt ónefndum lögreglu­manni sem ræddi við fjölmiðla í Banda­ríkjunum. Þetta hefur ekki verið staðfest af lögreglunni.

Nancy Pelosi er einn valda­mesti stjórn­málamaður Banda­ríkjanna en hún hefur setið á þingi síðan árið 1987. Eigin­maður hennar er milljarðamæringur en hann stofnaði áhættu­fjármagns­fyrirtæki en hann er fæddur og uppalinn í San Francisco. Hafa þau verið gift síðan 1963 og eiga saman fimm börn.

Nákvæmar aðstæður árásarinnar eru óljósar og ekki er enn vitað hvernig hinn óboðni gestur komst inn í hús hjónanna.

Bandaríska alríkis­lögreglan ásamt USCP (e. US Capitol Police), sem hefur aðsetur í Kaliforníu, aðstoða lögregluna í San Francisco við rannsókn málsins.

Þingmenn Banda­ríkjaþings hafa verið á varðbergi vegna öryggis­ógna allt frá því að múgur réðist inn á þinghúsið í höfuð­borginni. Var þá skrif­stofa Pelosi lögð í rúst af stuðnings­mönnum Donald Trump, þáverandi forseta Banda­ríkjanna.

Þá var málningu spreyjað á heimili hennar í San Francisco í fyrra.

Það var BBC sem sagði frá árásinni í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“