Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Steinunn Eldflaug hannar geimtölvuleik: „Það er fullt af tónlist í honum sem ég er búin að búa til“

Steinunn Eldflaug
Steinunn Eldflaug Mynd: Art Bicnick

Afmælis­barn dagsins er hin bráð­skemmtilega og ofur­hressa tónlistar­kona, Steinunn Eldflaug Harðar­dóttir. Eru nú 420 mánuðir síðan Steinunn fæddist.

Steinunn Eldflaug hefur verið í hljómsveitum og verkefnum á borð við Sparkle poison, Fushigi four og Skelk í bringu en þekktust er hún fyrir hliðar­sjálfið Dj. flugvél og geimskip en undir því nafni hefur hún gefið út nokkrar plötur.

Í samtali við Mannlíf sagðist hún þurfa að vinna í dag og því verði lítið um afmælis­gleðskap. „Ég er sko í vinnunni en ég ætla að halda upp á daginn með því að fá mér ís í hádegismat. En svo ætla ég að halda upp á þetta á fimmtudaginn en þá spila ég á tónleikum með Heklu vinkonu minni í Iðnó. Það er samt ekki beint afmælið mitt, bara tónleikar en ég hugsa að það verði samt svona afmælis­veislan, að spila á tónleikum.“

Aðspurð hvað sé svo á döfinni hjá henni á næstunni, til dæmis utan­landsferð, svaraði Steinunn: „Nei er ekki að fara til útlanda. Ég er bara svo spennt að halda tónleika á fimmtudaginn því það er svo langt síðan ég gerði það síðast. En svo er ég líka mjög spennt því ég er að gera tölvuleik með norskum vini mínum en við erum að forrita hann. Hann kemur út einhverntíman í vetur. Hann gerist einhversstaðar lengst út í geimi og það er fullt af tónlist í honum sem ég er búin að búa til.“

Blaða­manni Mannlífs lék forvitni á að vita hvort Steinunn héti Eldflaug samkvæmt lögum.
„Hvað getur eitthvað blað eða stafur í tölvu sagt hvað ég heiti? Hvernig vita þeir það? Af hverju ætti ég að treysta einhverju tölvu­forriti sem segir að samkvæmt Þjóðskrá heiti ég eitthvað? Þegar allir kalla mann eitthvað þá er það auðvitað nafnið manns. En Manna­nafnanefnd sagði mér að „það væri ekki hefð fyrir því í íslensku máli að fólk heiti eftir farar­tækjum að undan­skildu nafninu Vagn sem unnið hefur sér sess í íslensku máli,“ sagði Steinunn Eldflaug og hló.

Í lok samtalsins virtist Steinunn fá bakþanka með að halda ekkert upp á afmælið í dag. „Æ ég held kannski líka upp á afmælið með því að fá mér ís með fjöl­skyldunni eftir vinnu, hver veit? Ís er uppáhaldið mitt.“

Mannlíf óskar þessari indælu og skemmtilegu tónlistar­konu innilega til hamingju með daginn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá