Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

17 ára stelpa dæmd í fangelsi, ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir hrottalegt morð á geðlækni

17 ára stelpa hefur verið dæmd, ásamt tveimur mönnum í samtals 84 ára fangelsi fyrir hrottalegt morð á geðlækni í Bretlandi.

Dionne Timms-Williams var aðeins sextán ára þegar hún, ásamt Jason Edwards, 25 ára og Lee Strickland, 36 ára, réðust á Dr. Gary Jenkis og urðu honum að bana.

Dr. Jenkis var 54 ára, tveggja barna faðir en talið er víst að árásin hafi átt sér stað vegna kynhneigðar Jenkis en hann var tvíkyn­hneigður.

Morðið náðist á öryggismyndaél en þar sést hin sextán ára Dionne hlæja á meðan hún lét höggin dynja á fórna­lambinu.

Louis Williams varð vitni af hryllingnum og reyndi að koma lækninum til bjargar en það var orðið um seinan. Hann lýsir Dionne sem „illri og satan­ískri“. Hann sagði frá því í dómsal að hann væri haldinn miklu samvisku­biti: „Hefði ég átt að slást betur?,“ sagði hann í vitna­stúku.

Árásin átti sér stað í almennings­garði snemma morguns og eru þreminningarnir sagðir hafa beðið þar eftir tækifæri til að ráðast á einhvern og ræna. Einn árásar­mannana sást í öryggis­myndavél reyna að kaupa sér viskí með stolnu kredit­korti læknisins, aðeins átta mínútum eftir árásina.

Dionne gaf lögreglu yfir­lýsingu þar sem hún sagðist hafa verið neydd í að taka þátt í verknaðinum og hafi óttast líf sitt. „Ég hélt að ef ég gerði ekki það sem hann sagði mér að gera þá myndi ég deyja,“ sagði hún.

Árásar­mennirnir þrír játuðu á sig manndráp af gáleysi, rán og líkams­árás. Þau voru þó öll þrjú fundin sek um morð.

Dómarinn í málinu sagði árásina hafa verið haturs­glæp gegn samkyn­hneigðum en garðurinn er þekktur samkomu­staður samkyn­hneigðra karlmanna.

Mennirnir tveir fengu báðir lífstíðardóm með möguleika á reynslu­lausn eftir 33 ár. Dionne fékk lífstíðardóm með möguleika á reynslu­lausn eftir 18 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall