Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Tvö glæný lög með Miomantis: „Ég horfi á þetta sem einskonar þerapíu“

Bjarmi Friðgeirsson, Davíð Máni Jóhannesson, Zophonías Tumi Guðmundsson
Bjarmi Frið­geirs­son, Davíð Máni Jóhann­es­son, Zophonías Tumi Guð­munds­son Mynd: Aðsend

Hljóm­sveitin Miomantis hefur nú gefið út tvö ný lög sem verða á væntanlegri LP plötu bandsins. Mannlíf ræddi við Davíð Mána Jóhannesson gítar­leikara hljóm­sveitarinnar.

Davíð Máni Jóhann­es­son, Zophonías Tumi Guð­munds­son, Bjarmi Frið­geirs­son

Þerapía

Fyrra lagið heitir Rats Encaged og er af væntanlegri LP plötu Miomanis sem áætlað er að komi út árið 2023. Er um að ræða smáskífu. Lagið er samið, tekið upp, mixað, masterað og spilað af Miomantis en verkefnið er styrkt af upptöku­sjóði STEF.

„Ég man örlítið eftir hvernig þetta var samið. Ég samdi aðal riffið og fannst það nett. Samdi svo fleiri riff sem væru svipuð en með mjög subtle breytingum í lokin á riffinu. Og bridge part sem var clean gítar. Fannst þetta svalt og hafði mér verið sagt að fara nú að bæta við söng og texta í lögin okkar. Svo ég settist við tölvuna mína. Opnaði WORD. Og lét hugann flæða,“ sagði Davíð Máni í samtali við Mannlíf. Hélt hann svo áfram: „Lagið kemur frá reiðum stað og fjallar um þunglyndi og sjálfsvígs­hugsanir. Og já það er kannski ekki beint fyrir krakka að hlusta á en þetta er umfjöllunar­efni sem skiptir máli fyrir mig, enda hef ég marg oft verið á svona stað. Fundist ég vera fastur í búri. Svona eins og rotta. En umfjöllunar­efni um svona finnst mér oft vanta í íslenska tónlist sem er vanalega „happy go lucky.“ sem er ekki slæmt. En fólk þarf líka að heyra að raun­veruleikinn er ekki bara dans á rósum.„

Davíð sagði að í upptöku­ferlinu hafi hann notast við þrjá mismun­andi gítara „og var tekið upp slatta af rásum.“ Davíð hélt áfram að útskýra ferlið: „Og einnig layeruðum við allskonar hljóðfæri sem við fundum á upptöku­svæðinu í bridge kaflanum sem ég talaði um hér áður. Finnst mér þetta eitt sterkasta lagið okkar. Einnig höfum við verið að test runna þetta lag á tónleikum. Og tekur fólk vel í það. Ég er ánægður með riffin, og Bjarmi og Tumi höfðu líka slatta af tíma til að semja sína parta sem gerir lagið dínamískt og þétt.“

Seinna lagið þyngra

Seinna lagið segir Davíð vera þyngra og dimmara.

„Seinna lagið, Rotting Roses Turned To Grey er dimmara lag. En það kom til með þegar ég tók upp gítarinn á köldum, skýjuðum þokudegi. Gítarinn var stilltur öðruvísi en vanalega. Og byrjaði ég að semja. Lagið er í raun mjög opið. A moll, G og F og E. Þetta leyfði Bjarma og Tuma að semja sína parta í laginu og gera það þétt og dínamískt og soltið meira creative á bassanum og trommum, og að sjálfsögðu gaf það færi á góðar söng melodíur og texta.“

En um hvað er textinn?
„Textinn er svona talaður í mynd­líkingu og er í raun um þunglyndi eins og fyrra lagið, nema þarna er sviðs­myndin öðruvísi á þann hátt að þarna er manneskjan á botninum. Erfitt að komast upp aftur. Og ég hef verið á þeim stað líka. En ég horfi á þetta sem einskonar þerapíu. Ef ég sem um erfiðar tilfinningar losa ég um og hef pláss til að vera ánægður í hversdags­leikanum. Ég er ánægður með bæði lögin og finnst þau bestu sem við höfum sett út, enda munu fleiri hlusta eflaust fyrst það er texti. Ég er enginn menntaður, né góður söngvari, en ég vil syngja mína texta sjálfur, það er þannig sem ég virka. En er ég ánægður með útkomuna.“

Finnur til ábyrgðar gagnvart hlustendum sínum

Eins og fram kom hér að ofan verða bæði þessi lög á vænanlegri LP plötu á næsta ári. En er einhvert heildar­hugmynd eða konsept á plötunni eða er hvert lag með sína stöku sögu?

„Mörg lögin eru um svona erfið mál. Við erum með eitt lag um stríð og hörmungar þess og sjálfs­elskuna í því sem pólitíkin hefur, auðvitað á svona ekki að gerast og þarf að vekja athygli á því. Annað lagið er um fíkn í eiturlyf eða alkohól og er ég sjálfur edrú fíkill þannig það kom til eftir erfiðan dag þar sem ég var fastur í löngun. En svo eru fleiri lög. Þetta ætti að gefa í skyn hverju má búast við og hlakka ég mikið til. Hvernig ég horfi á það eins og ég sagði með hvernig þetta er þerapí fyrir mig þá held ég að svona textar geti verið þerapí fyrir aðra að vita að þeir eru ekki einir í svona baráttu. Og finnst mér, sem tónlistar­maður, þá hef ég ákveðin málstað til að koma svona erfiðum hlutum á framfæri og finnst mér það vera pínu mín ábyrgð,“ sagði Davíð við blaðamann Mannlífs.

Er eitthvað að lokum sem þú vilt segja Davíð?

„Við viljum þakka MBS kollektívinu fyrir sinn kærleika og umburðar­lyndi og lán á hljóð­nemum oo fleiru. Einnig mælum við að leggja þeim hjálpar­hönd þar sem þeir lentu í vatns­tjóni nú á dögunum vegna óveðurs en það er hægt að gera

hér

.:Einnig viljum við þakka Hinrik starfs­manni Ungmenna­hússins Rósenborg fyrir að veita okkur aðgang, skilning og hjálp.“Meðlimir hljóm­sveitarinnar eru þeir Davíð Máni Jóhannesson: Söngur/GítarZophonías Tumi Guðmundsson: BassiBjarmi Frið­geirsson: Trommur

Hægt er að hlusta á lögin tvö á Spotify með því að ýta á eftir­farandi hlekki:

Rats Encaged

Rotting Roses Turned To Grey

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt