Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Áföll í æsku tengd geðheilsuvanda: „Mikilvægt að styðja við börn sem lenda í slíkum áföllum“

©Kristinn Ingvarsson
©Kristinn Ingv­ars­son Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

„Það sýnir hversu afdrifarík áföll í æsku eru fyrir heilsu kvenna til lengri tíma og hversu mikilvægt er að koma koma í veg fyrir þau og styðja við börn sem lenda í slíkum áföllum,“ segja Hilda Björk Daníels­dóttir, doktorsnemi og fyrsti höfundar rann­sóknarinnar, og Unnur Anna Valdimars­dóttir, prófessor og ábyrgðar­maður rann­sóknarinnar á vef rann­sóknarinnar Áfalla­sögu kvenna.

Niður­stöður hinnar viðamiklu rann­sóknar Áfalla­saga kvenna sem var gerð á vegum Háskóla Íslands sýna að sterk tengsl eru milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsu­vanda og skertrar getu kvenna til að takast á við áskoranir daglegs lífs á fullorðins­árum. Sagt er frá niður­stöðunum í alþjóð­lega vísinda­tímaritinu eLife.

Vísinda­rannsóknin er ein sú stærsta sinnar tegundar á heimsvísu. Á árunum 2018-19 tóku um 32.000 konur búsettar á Íslandi þátt í rann­sókninni, sem samsvarar um 30% full­orðinna kvenna hérlendis á vinnu­færum aldri. Konurnar svöruðu ítarlegum spurninga­lista, meðal annars um áföll á lífs­leiðinni ásamt spurningum um geðræn einkenni og heilsufar á fullorðins­árum.

Í rann­sókninni var sjónum beint að áföllum í æsku, þar á meðal vanrækslu, kynferðis­ofbeldi, einelti, heimilis­ofbeldi, geð- og fíkni­vanda á heimili og andláti foreldra. Niður­stöðurnar benda til þess að tæplega helmingur kvenna hafi orðið fyrir fleiri en einu áfalli í æsku og um 10% hafi upplifað fimm eða fleiri áföll. Þá voru sterk tengsl milli fjölda áfalla í æsku og skertrar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs (seiglu) og aukinnar hættu á sálrænum einkennum á borð við áfalla­streitu, þunglyndi, kvíða, svefn­truflanir og áfengis­vanda á fullorðins­árum. Þau áföll í æsku sem höfðu hvað sterkust tengsl við sálræn einkenni og skerta seiglu á fullorðins­árum voru tilfinningaleg vanræksla, kynferðislegt ofbeld,i einelti og geðrænn vandi á heimili.

Þá höfðu ýmsir verndandi þættir geðheil­brigðis, til að mynda góð félagsleg tengsl og góður fjárhagur, lítil sem engin áhrif á tengslin milli áfalla í æsku og skertar seiglu og geðvanda á fullorðins­árum.

Í umsögn ritstjóra eLife um rann­sóknina segir að niður­stöður hennar séu mikilvægt framlag til aukinnar þekkingar og vitundar­vakningar um áhrif áfalla í æsku á seiglu og heilsufar.

Greinin í eLife

Heimild:

Hilda Björk Daníels­dóttir, Unnur Anna Valdimars­dóttir. 2022. Áfalla­saga kvenna. Háskóli Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá