Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Katrín segir grunnt á fordómum gagnvart hinsegin fólki á Íslandi: „Þetta slær mig hræðilega“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Mynd / Aldís Pálsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir ofbeldis­framkomu ungmenna í garð hinsegin jafnaldra sýna svart á hvítu að grunnt sé á fordómum á Íslandi.

Hún segist vera slegin yfir fréttum af slíkum málum og verið sé að grípa til aðgerða stjórn­valda til að uppræta slíka ómenningu.

Komið hefur fram í fjöl­miðlum undan­farið að hópur hinsegin unglinga á höfuð­borgar­svæðinu segist verða fyrir aðkasti daglega; sem eigi sér meðal annars rætur sínar að rekja til samfélags­miðilsins TikTok.

Ungmennin segjast jafnvel forðast að fara ein úr húsi og að foreldrar þeirra lifi í stöðugum ótta; biðla til annarra foreldra að fræða börn sín um skaðsemi eineltis og áreitni.

Dæmi eru um að hinsegin unglingar hafi verið grýttir og þeim veitt eftirför; gelt að þeim og þeim hótað lífláti: Sögðu ungmenni sem rætt var við að vinur þeirra sem orðið hafði fyrir mjög miklu aðkasti hafi svipt sig lífi í fyrra.

Katrín forsætis­ráðherra er líka ráðherra jafnréttis­mála, og þessi staða vekur upp ugg hjá henni:

„Þetta slær mig auðvitað bara hræðilega. Það er mjög dapurlegt að einhvern veginn svona orðræða líðist í samfélaginu,“ segir hún og nefnir að verið sé að setja saman starfshóp sem á að leggja til leiðir um hvernig hægt sé að takast á við fordóma og haturs­orðræðu í íslensku samfélagi; að í hópnum verði fulltrúar vinnu­markaðar, dómstóla, skóla og hagsmuna­hópa.

Katrín segir Ísland hafa þokast ofar í alþjóð­legum saman­burði um réttindi hinsegin fólks; sérstak­lega vegna laga­setninga að undan­förnu sem ætlað er að tryggja að ástandið batni; en þó sé það þannig að oft taki langan tíma fyrir menninguna að breytast í samræmi við laga­breytingar:

„Það er einmitt meðal annars verkefni þessa hóps um haturs­orðræðu. Það er ekki bara að horfa á löggjöfina heldur hvernig getum við unnið að því að uppræta þessa ómenningu.“

Katrín er þó á því að nokkuð langt virðist vera í land með að hægt verði að uppræta þennan óhugnað. Hún var spurð hvort það komi henni á óvart að fordómar gegn hinsegin fólki skuli koma frá ungu fólki, sem ætti að hafa alist upp við nýrri og breytt viðhorf:

„Ég held að þetta sýni okkur bara að það er grunnt á fordómunum, þannig er það nú bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá