Dramatísk viðureign hunds og hlébarða náðist á myndband í Rudraprayag-héraði í norðurhluta Indlands á þriðjudag.
Á upptökunni sést hlébarðinn læðast inn í garð þar sem hundurinn liggur sofandi á borði. Rándýrið stekkur skyndilega á hundinn, grípur hann um hálsinn og dregur hann niður á jörðina.
Hundurinn veitir hins vegar harða mótspyrnu og tekst á við hlébarðann í nokkra stund. Eftir átökin virðist hlébarðinn gefast upp og hörfar úr garðinum. Hundurinn lætur þar þó ekki staðar numið heldur eltir rándýrið á brott.
Skömmu síðar sést eigandi hundsins koma út í garðinn.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli og jafnframt áhyggjur meðal íbúa á svæðinu. NDTV greinir frá því að kallað hafi verið eftir auknu eftirliti skógræktaryfirvalda vegna hlébarða í nágrenninu.
Atvik þar sem hlébarðar leita inn á byggð svæði hafa ítrekað vakið áhyggjur í ýmsum héruðum Indlands, ekki síst vegna hættu sem getur skapast fyrir bæði fólk og húsdýr.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir