Tveimur ferðamönnum var bjargað af Kötlujökli í gær. Annar þeirra hafði örmagnast.
Seinni partinn í gær, fimmtudag, barst beiðni frá tveimur ferðamönnum sem voru á ferð að eða frá íshelli í Kötlujökli, eftir aðstoð. Hafði annar þeirra örmagnast á göngunni. Feykir hefur eftir tilkynningu frá Landsbjörgu að fólkið hafi verið statt á Vatnsrásarhöfði, rétt norður af Remundargilshöfði en þar liggur þekkt gönguleið úr Þakgili að Kötlujökli.
Fram kemur í frétt
Feykis
að björgunarsveitir á svæðinu frá Vík og austur á Kirkjubæjarklaustur hafi verið boðaðar út og lögðu af stað til aðstoðar. Fólkið fannst á gönguleiðinni rétt um klukkan 18 og fékk það aðstoð niður að björgunarsveitarbíl.
Þeim var svo keyrt inn í Þakgil, þar sem þeir höfðu skilið bíl sinn eftir við upphaf gönguferðarinnar. Þurftu þeir ekki frekari aðstoð og lauk því starfi björgunarsveitanna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir