Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ellefu skipverjar á reki í 15. klukkustundir: „Allt í einu fór báturinn á stjórnborðshliðina“

Skipbrotsmennirnir af Hamri, þegar þeir komu í bæinn um morguninn. Þeir sitja í langferðabílnum. í fremstu röð: Eðvald Eyjólfsson stýrimaður sem var í brúnni, þegar slysið gerðist, Georg Georgsson háseti, Birgir Erlendsson skipstjóri. Sitjandi í næstu röð: Erljngur Ríkarð Guðmundsson, Tómas Þorkelsson 2. vélamaður, Jón Gunnarsson matsveinn og Friðrik Sigurðsson 1. vélstjóri. Standandi í aftari röð: Sigurður Jónsson, Björn Ragnarsson, Guðmundur Friðriksson (sonur Friðriks vélstjóa og yngsti maður áhafnarínnar 15 ára) og Gísli Ólafsson.
Skip­brots­menn­irnir af Hamri, þegar þeir komu í bæinn um morg­un­inn. Þeir sitja í lang­ferða­bílnum. í fremstu röð: Eðvald Eyj­ólfs­son stýri­maður sem var í brúnni, þegar slysið gerð­ist, Georg Georgs­son háseti, Birgir Erlends­son skip­stjóri. Sitjandi í næstu röð: Erljngur Ríkarð Guð­munds­son, Tómas Þor­kels­son 2. véla­maður, Jón Gunn­ars­son mat­sveinn og Friðrik Sig­urðs­son 1. vél­stjóri. Stand­andi í aft­ari röð: Sigurður Jónsson, Björn Ragn­ars­son, Guð­mundur Frið­riks­son (sonur Friðriks vél­stjóa og yngsti maður áhafnar­ínnar 15 ára) og Gísli Ólafsson.

Tveir menn voru á brúnni þennan júlí en vakta­skipti höfðu nýlega verið um borð í Hamri frá Sandgerði en hann hafði nýlega verið uppgerður og hafði um borð fullkomin tæki til veiða. Allt leit sem sagt vel út og áhöfnin kát á leið á síld­veiðar. En þeir komust aldrei á veiðarnar því bátnum hvolfdi skyndi­lega og var 11 manna áhöfnin í vanda statt og mátti engu skeika ef þeir ætluðu allir að lifa af.

Vísir sagði frá þessu sjóslysi sem gerðist í 1. júlí árið 1962 á eftir­farandi máta:

Sá furðulegi atburður gerðist hér á miðjum Faxaflóa, að glæsilegu, nýuppgerðu 80 tonna fiskiskipi, Hamri frá Sandgerði hvolfdi allt í einu og hann sökk á svo skömmum tíma að skip­verjarnir ellefu að tölu komust aðeins naumlega í gúmmí­björgunarbát.

Og það sem er enn furðulegra. Það var ekki fyrr en kl. 2 síðastliðna nótt, sem menn höfðu nokkra hugmynd um þetta sjóslys. Þá komu sex af skipbrots­mönnunum á land á Mýrum, fóru heim að bænum Ökrum og gerðu vart við sig.

KONAN FÆR FRÉTTIRNAR

Þegar Vísir frétti um þetta slys snemma í morgun, hringdi frétta­maður blaðsins í frú Sigrúnu Theódórs­dóttur konu Birgis Erlends­sonar skip­stjóra á Hamri og spurði hana hvort hún hefði frétt nokkuð af bátnum.
— Nei, ekkert sérstakt, svaraði
hún. Hann á að koma á miðin í dag og byrja að veiða.
— Hafið þér ekki heyrt það að
báturinn sökk á laugar­daginn en allir mennirnir björguðust?
— Nei, það hef ég ekki heyrt. En er það öruggt að allir hafi bjargast.
— Já, það er öruggt, þeir eru allir ellefu talsins á leið til bæjarins í bíl.
— Guði sé lof, sagði konan.

SKIPBROTSMENN KOMA Í BÆINN

Frétta­menn Vísis sátu fyrir rútubíl frá Akranesi, sem hafði farið upp á Mýrar til að sækja
skipbrots­mennina. Hann kom í bæinn skömmu fyrir kl. 11 i morgun. Í honum sátu allir hinir ellefu skipbrots­menn. Þeir voru enn flestir á sokka­leistunum, en útgerðin hafði í flýti sent þeim nauðsynleg föt. Það var enginn tími til að klæða
sig í fötin, sögðu skipbrots­mennirnir.
— Ég kom út á stuttum nærbuxum og bol, sagði Friðrik Sigurðsson 1. vélstjóri. Hinir voru sumir á nærfötum og flestir skólausir.
— Hvernig bar slysið að, spurði
frétta­maður Vísis skip­stjórann Birgi Erlendsson (en hann er sonur Erlends Þorsteins­sonar í síldar­útvegs­nefnd).

BÁTNUM HVOLFDI SKYNDILEGA

Það voru vakta­skipti og aðeins tveir menn voru í brúnni. Það var nokkur stormur, en þó ekki svo að nein hætta væri á ferðum. Allt í einu fór báturinn á stjórnborðs­hliðina. Ég kom þá fram og reyndum við fyrst að stýra bátnum og sigla honum upp en það bar engan árangur. Hann lá á hliðinni og möstrin fóru í sjóinn.
— Hvernig heldurðu að hafi staðið á því að bátnum hvolfdi.
— Það get ég ekki sagt. Hann var tómur.
— Heldurðu að það geti verið að hann hafi orðið yfir­hlaðinn vegna þess, að sjór hafi safnazt í nótina og hún þyngzt þannig?
— Nei, það held ég að komi ekki til mála.

SNARRÆÐI SKIPSTJÓRANS

Skip­verjarnir segja frétta­manni blaðsins að þeir eigi snarræði skip­stjórans mest að þakka, að þeir standa nú hér lifandi. Það munaði vissulega mjög mjóu. Því að báturinn sökk á svo skömmum tíma.
Skip­stjórinn fór og klifraði upp eða réttara sagt niður á þak stýris­hússins þar sem kassinn með gúmmí­bátnum var geymdur. Kassinn var þá kominn undir sjó og var það þrekvirki hjá skip­stjóranum að opna hann, en gúmmí­báturinn opnaði sig strax og við komumst í hann.
— Eruð þið ailir syndir?
— Já, við erum allir syndir segir Friðrik, 1. yélstjóri, nema ég.
Ég lærði í gamla daga að synda, en hef ekkert iðkað það. Flestir skip­verjarnir fóru í sjóínn til að komast út í bátinn og urðu blautir, en tveir klifruðu þó út eftir mastrinu og út í bátinn.
Allt gerðist þetta með svo skömmum hætti að enginn tími vannst til að senda út neyðar­skeyti.

Skip­brots­menn­irnir af Hamri, þegar þeir komu í bæinn um morg­un­inn. Þeir sitja í lang­ferða­bílnum. í fremstu röð: Eðvald Eyj­ólfs­son stýri­maður sem var í brúnni, þegar slysið gerð­ist, Georg Georgs­son háseti, Birgir Erlends­son skip­stjóri. Sitjandi í næstu röð: Erljngur Ríkarð Guð­munds­son, Tómas Þor­kels­son 2. véla­maður, Jón Gunn­ars­son mat­sveinn og Friðrik Sig­urðs­son 1. vél­stjóri. Stand­andi í aft­ari röð: Sigurður Jónsson, Björn Ragn­ars­son, Guð­mundur Frið­riks­son (sonur Friðriks vél­stjóa og yngsti maður áhafnar­ínnar 15 ára) og Gísli Ólafsson.

15 KLST. Á REKI

— Voruð þið svo lengi í gúmmí­bátnum? 
— Okkur var að reka á honum í 15 kist. segir skip­stjórinn. Það er mikil mildi að veðrið var á vestan svo okkur bar að landi, en jafnvel það hefði getað farið illa, ef okkur hefði borið upp á sker.
— Hvernig var aðbúnaðurinn á bátum?
— Það var þröngt í honum, við vorum ellefu á tíu manna bát. Verst að sumir voru illa klæddir.
— Höfðuð þið nokkuð til að borða?
— Það voru venjulegar matar­birgðir í bátnum, en við borðuðum ekkert. Við höfum náð í fjalir úr þilfars­milligerð og gátum örlítið róið okkur áfram með þeim. Það bjargaði okkur kannski, því að þegar okkur bar um hádegið á sunnudag upp að Hvalsey við Mýrar virtist alls staðar ólendandi fyrir skerjum og brimi, nema á einum stað, þar sem læna virtist út frá
eynni og gátum við róið okkur að henni með þessum spýtum.

ENGINN SÁ BÁLIÐ

— Reynduð þið ekki að gera vart við ykkur, þegar þið komuð
upp í Hvalsey?
— Jú, við reyndum öll ráð. Við skutum neyðar­rakettum og blysum, kveiktum bál úr rekavið sem stóð í margar klst. og settum upp hvít flögg, en allt kom fyrir ekki. Það var slæmt í sjóinn svo að við lögðum ekki aftur af stað á gúmmí­bátnum, enda segja bændur á Mýrum okkur nú, að það hefði getað orðið okkar bani, því að mikið brim var við ströndina.

KOMIÐ Á BÆ UM NÓTTINA

Þegar veðrið lægði og sjórinn stilltist í gærkvöldi fórum við svo sex saman á gúmmí­bátnum í land og komum að Ökrum á Mýrum um kl. 2 um nóttina. Þar vöktum við upp. Bóndinn á Ökrum, Ólafur Þórðarson og fólk hans tók ákaflega vel á móti okkur, gaf okkur mat og gekk úr rúmi fyrir okkur. Ólafur bóndi á Mýrum hafði ekki bát tiltækan en hafði samband við Helga Gíslason í Tröðum á Mýrum og sagði honum að skipbrots­menn væru úti í Hvalsey.
Helgi brá þegar við á bát sínum og sótti skipbrots­mennina.

MEÐ NÝ OG FULLKOMIN TÆKI

Þeir komu sem fyrr segir til Reykja­víkur um 11 leytið í morgun. Þeir kváðust skilja það, að þeir væru úr helju heimtir. Og þegar þeir fóru að minnast á skipið, mátti heyra trega í rödd þeirra
— Það var auman að þetta skyldi koma fyrir eftir alla fyrir­höfnina við að útbúa skipið á síld­veiðar. Það var nýuppgert, skipið og öll tæki í því ný og fullkomin. Splúnkuný síldar­leitartæki og kraft­blökk. Þar með erum við búnir að missa af síldar­vertíðinni. Það
er sannarlega- mikið áfall.
En getið þið ekki komizt á önnur skip?
— Það er ólíklegt, svöruðu þeir, það er ekki auðvelt að komast í
skipsrúm á síldar­bátum nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá