Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hlutfall alvarlega slasaðra hátt: „Við þurfum að hafa hraðar hendur“

Mynd/skjáskot. Samgöngustofa
Mynd/skjá­skot. Sam­göngu­stofa

„Við þurfum að hafa hraðar hendur við að tryggja umferðar­öryggi allra þeirra sem kjósa að nota smáfarartæki. Tillögur starfs­hópsins eru því mikilvægt innlegg í endur­skoðun umferðar­laga með tilliti til þessa nýja ferðamáta,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviða­ráðherra.

Smáfarartækjum, aðallega rafhlaupahjólum, hefur fjölgað ört á síðustu árum. Í loka­skýrslu starfs­hóps skýrslu varðandi mála­flokkinn segir að þægindi og aukin vitund um umhverfis­áhrif umferðar stuðli að þessum vexti, en ávinningur samfélagsins felist m.a. í minni umferðar­töfum í þéttbýli og minni mengun frá umferð.

Kynntar eru sex tillögur til úrbóta til að auka öryggi notenda smáfarartækja og annarra vegfarenda  um smáfarartæki.  Tillögurnar eru til þess gerðar að styðja við notkun fjöl­breyttra umhverfis­vænna farar­skjóta með öruggum hætti.

Í skýrslunni er lagt til að skýr mörk verði sett varðandi ölvun ökumanna, aldurs­mörk ökumanna verði 13 ár og bannað verði að breyta hámarks­hraða ökutækja. Þá er lagt til að umferðar­fræðsla verði með skýrum hætti hluti aðal­námskrár grunn­skóla. Skýrslan verður höfð til hliðsjónar við undir­búning frumvarps til breytinga á umferðar­lögum sem lagt verður fram á Alþingi næsta vetur.

Alvarleg slys algeng

Hópurinn athugaði slysagögn sem leiddu í ljós að slys eru algeng.

Árið 2021 var hlutfall þeirra sem voru á rafhlaupahjóli meðal alvarlega slasaðra orðið 17% en akstur á rafhlaupahjólum er innan við 1% af allri umferð. Þá kom í ljós að 40% þeirra sem slasast alvarlega á rafhlaupahjóli voru á ferð á milli kl. 23 og 04 á föstudags- og laugardags­kvöldum.

Margir þeirra reynast einnig ölvaðir við komu á slysa­deild Lands­spítala. Í könnun um aksturs­hegðun kom í ljós að 40% ungra vegfarenda (18-24 ára) hafa ekið tækjum undir áhrifum áfengis. Loks er algengt að börn undir 10 ára aldri komi á slysa­deild eftir óhöpp við akstur rafhlaupahjóla.

Eftir­farandi eru tillögur hópsins til úrbóta:

  1. Nýr flokkur ökutækja: Nýr ökutækja­flokkur smáfarartækja verði innleiddur í umferðarlög. Í reglugerð verði að finna nánari flokkun smáfarartækja eftir gerð og eigin­leikum. Miðað verði við að smáfarartæki séu ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km/klst. Hjól sem eru yfir settum mörkum verði ekki leyfileg í umferð.
  2. Ölvun ökumanna: Sett verði hlutlæg viðmið sem feli það í sér að refsivert verði að stjórna smáfarartæki ef magn áfengis er meira en 0,5 ‰ í blóði ökumanna, eða 25 mg vínanda í hverjum lítra lofts sem er sambærilegt við mörk við akstur vélknúinna ökutækja. Sektir vegna brota verði hækkaðar í forvarnar­skyni og miðað við að ljúka málum á staðnum með greiðslu sektar, fremur en að handtaka ökumenn og færa á lögreglustöð til skýrslu­töku og blóð­rannsóknar, ef hjá því verður komist.
  3. Aldur ökumanna: Aldurs­mörk ökumanna aflknúinna smáfarartækja verði 13 ár en hjálma­skylda miðist við yngri en 16 ára.
  4. Almennt bann við því að breyta hámarks­hraða: Lagt verði bann við breytingum á hraða­stillingum aflknúinna smáfarartækja, léttra bifhjóla og rafmagns­reiðhjóla.
  5. Færni ungmenna í umferð: Í umferðar­lögum segir að umferðar­fræðsla skuli fara fram í leik-, grunn- og framhalds­skólum og að ráðherra sem fer með fræðslumál ákveði nánari tilhögun fræðslu í aðal­námskrá. Til að tryggja fylgni við lög er lagt til að ráðherra beiti sér fyrir því að umferðar­fræðsla verði hluti af aðal­námsskrá.
  6. Akstur á götum: Ef tillögur starfs­hópsins hvað varðar ölvun við akstur og aldurs­mörk ganga eftir telur hópurinn að leyfa skuli akstur rafknúinna smáfarartækja í almennri umferð á vegum þar sem hámarks­hraði er 30 km/klst. eða lægri, enda getur veghaldari lagt sérstakt bann við umferð þeirra á einstökum vegum eða vegköflum, sé ástæða til.

Nánar um starfshópinn

Í starfs­hópnum sátu fulltrúar Vega­gerðarinnar, Samgöngu­stofu, Reykja­víkurborgar, Sambands íslenskra sveitar­félaga, lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu og ráðuneytisins.

Skýrsla starfs­hópsins var unnin í samráði við ýmsa hagsmuna­aðila og að loknu opnu samráði á samráðs­gátt stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá