Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Segir Helga Hrafn hafa bannað sér að bjóða sig fram: „Fékk nóg af hræsninni sem gegnsýrir Pírata“

Helgi Hrafn Gunnarsson.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son.

Fyrrum þingmaður Pírata, frétta­maðurinn og grín­istinn Gunnar Hrafn Jónsson henti sprengju á Facebook-vegginn sinn í dag. Upp úr þeirri sprengju spruttu upp mikið rifrildi meðal Pírata.

Gunnar Hrafn Jónsson

Í færslunni heldur Gunnar Hrafn því fram að þegar Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, hafi tekið við sem leiðtogi flokksins fyrir þarsíðustu kosningar, hafi verið hans fyrsta verk að reka Gunnar Hrafn úr flokknum. Það hafi hann gert eftir að hafa boðað Gunnar á fund fyrir utan sjoppu í Vestur­bænum. Tilkynnti Helgi honum að hann mætti ekki bjóða sig fram aftur í nafni flokksins, því það myndi skaða flokkinn. Sagðist Helgi hafa fyrir því heimildir að taka ætti Gunnar Hrafn af lífi í fjöl­miðlum vegna dræmrar mætingar á nefndar­fundi og þingflokk­fundi. Segir Gunnar í færslunni að hann hafi skoðað gögnin sjálfur og séð að hann hafi verið í veikinda­leyfi eða utan þing­flokks í flestum ef ekki öllum tilfellum. Segir hann Helga ekki hafa tekið mark á því og sagt að blaða­maður nokkur myndi brátt rekja málið innan skamms. Heldur Gunnar því fram í færslunni að blaða­maðurinn sé Björn Leví Gunnarsson, mótframbjóðandi hans í próf­kjörinu. Hér er færslan í heild sinni:

„Að gefnu tilefni.

Fyrir þarsíðustu kosningar steig

Helgi Hrafn Gunnarsson

fram til að leiða flokk Pírata. Hans fyrsta verk sem eigin­legur leiðtogi flokksins var að boða mig á fund fyrir utan sjoppu í Vestur­bænum þar sem hann tilkynnti mér að ég mætti ekki bjóða mig fram aftur, það myndi skaða flokkinn.Ástæðan væri sú að honum hefði borist eftir einhverjum boðleiðum fregnir af því að það ætti að taka mig af lífi í fjöl­miðlum fyrir lélega mætingu á nefndar­fundi og þing­flokksfundi. Þegar ég skoðaði sjálfur gögnin kom í ljós að ég var í veikinda­leyfi eða utan þing­flokks í flestum eða öllum tilvikum. Helgi tók ekkert mark á því og endurtók hótanir sínar um að þetta yrði allt rakið af blaða­manni innan skamms ef ég hætti ekki við framboðið.Fljótlega kom í ljós að „blaða­maðurinn“ sem var að safna þessum gögnum var Björn Leví, mótframbjóðandi minn í próf­kjörinu. Hann birti afar skakka mynd af stöðu mála í blogg­færslu á heimasíðu sinni sem var þá væntanlega „fjöl­miðillinn“ sem Helgi vísaði til.Vart þarf að taka fram hagsmuna­áreksturinn sem hér á sér stað. Mér er hótað með fjölmiðla­umfjöllun sem reyndist vera ímyndun mótframbjóðanda. Hringt var í fjölda stuðnings­manna minna til að minna á að ég væri geðveikur og mér ekki treystandi.Sérstak­lega finnst mér gróflega vegið að fólki sem glímir við andleg veikindi í þessu máli þar sem það var alltaf undir­liggjandi að mér væri ekki treyst vegna sjúkra­sögu minnar. Helgi Hrafn fullyrti það fyrir utan sjoppuna í Vestur­bænum en sver það nú af sér.

Það er skammarlegt og mun kosta Pírata minnst eitt atkvæði í næstu kosningum.“

Björn Leví neitar

Björn Leví svarar færslunni og segist ekki vita hversu oft hann hafi mætt í nefnd fyrir Gunnar á þessum tíma.

„Ég veit alveg hversu oft ég mætti í nefnd fyrir þig á þessum tíma af því að þú mættir ekki. Lengi vel vissum við ekki einu sinni að þú værir ekki að mæta af því að þú lést okkur ekkert vita af því. Það var eftir að þú komst inn aftur eftir veikinda­leyfi.Ég hef ekki hugmynd hvort ég sé þessi blaða­maður eða ekki. Býst við ekki, því mæting þingmanna í nefndir er aðgengileg öllum í fundar­gerðum nefndanna. Ég er bara með forrit sem les það upp sjálf­krafa.

Eins og ég segi. Þá eru þessar upplýsingar aðgengilegar öllum í fundar­gerðum. Þær upplýsingar tala bara fyrir sig sjálfar. Ég var búinn að birta þessar upplýsingar reglulega frá því á kjör­tímabilinu 2013 – 2016 eftir að Morgun­blaðið notaði gríðar­lega undarlega aðferð til þess að sýna mætingu þingmanna í nefndir.“

Björn Leví Gunn­ars­son Pírati

Þessu svarar Gunnar Hrafn: „Björn Leví Gunnarsson. Það var enginn „blaða­maður“ að fylgjast með þessu, bara þú, og þú vissir vel að ég stóð utan þing­flokks Pírata lengi vel eftir að þið hentuð Ástu á haugana, fyrir utan veikinda­leyfið. Ég hlífði ykkur við því að ganga í Samfylkinguna og taka af ykkur þingmann en það var tæpt – MJÖG tæpt. Auðvitað mætti ég ekki á þing­flokksfundi á þessum tíma, ég hefði betur farið í annan flokk og það stóð tæpt. Afar tæpt.“

Björn Leví svaraði: „Gunnar Hrafn Jónsson – ég hef ekki hugmynd um það. Fjöl­miðlar höfðu áður fjallað um mætingu þingmanna í nefndir. Ég er bara að segja frá því sem ég hef gert hvað það varðar og er aðgengilegt öllum í fundar­gerðum. Ég hef ekki hugmynd um hvort Helgi var að vísa í mig eða eitthvað annað. Ef hann notaði „blaða­maður“ þá var hann örugglega ekki að tala um mig hins vegar, svo mikið held ég að sé augljóst. Það gæti vel verið að einhver blaða­maður hefði notað saman­tektina sem ég gerði með forritinu mínu sem ég hafði verið að nota í nokkur ár … en Morgun­blaðið td. notaði aðra talningar­aðferð (taldi bara mætingar aðalmanna í aðal­nefndir. Ekki mætingu annarsstaðar á sama tíma sem varamenn td).“

Og þá svaraði Gunnar: „Tölfræðin um mig var röng. Það er munurinn. Ég var ýmist í veikinda­leyfi eða utan þing­flokks. Og það var bara tilviljun að þessar röngu upplýsingar gáfu þér undir­tökin í próf­kjörinu, fyrir utan símtölin sem ég heyrði af en ætla ekki að rekja hér. Rosalega geturðu lagst lágt.“

Hætti í Pírötum eftir að Ásta var sett af

Rökræðurnar ganga svo áfram á víxl en Gunnar Hrafn segist hafa látið þing­flokkinn vita að hann væri utan þing­flokks eftir að Ásta Guðrún Helga­dóttir var sett af sem þing­flokks­formaður, þó það hafi ekki verið gert opinber­lega. Fleiri Píratar koma svo inn í rifrildið og verja ýmist Helga Hrafn og Björn Leví. Athygli vekur að Helgi Hrafn tjáir sig ekki undir færslunni.

Ásta Guðrún Helga­dóttir

Í samtali við Mannlíf sagðist Gunnar Hrafn vera búinn að fá nóg af hræsninni í Pírötum í dag.

„Ég hef þagað yfir þessu lengi en fékk bara nóg af hræsninni sem gegnsýrir Pírata í dag, mér var bolað út vegna persónulegra hagsmuna og fordómum gegn andlegum veikindum og það er ekki flokkur sem ég get stutt lengur.“

„Hélt við værum vinir“

Mannlíf heyrði í Helga Hrafni og spurði hann út í málið.

„Ég skammast mín ekki neitt fyrir nokkurn skapaðan hlut. Ég hef hvorki neitt að fela né skammast mín fyrir í þessu máli. Og ef að sama staða kæmi upp myndi ég geri nákvæmlega það sama aftur og ef ég verð einhverntíman í sömu stöðu og Gunnar var í á þessum tíma, þá vona ég að einhver góður vinur minn komi til mín og tali við mig um stöðuna. Þá myndi ég þakka þeim vini, eftir á frekar en að kasta í hann útúr­snúningum og rang­túlkunum og skömmum. Þetta er pirrandi því ég hélt við værum í sama liðinu, ég hélt að við værum vinir. Það er bara leiðinlegt að fá svona framkomu frá einhverjum sem maður hélt að kæmi ekki svona fram við mann,“ sagði Helgi Hrafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá