Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Húsið var reist árið 1910

Tjarnarstígur 9
Tjarn­ar­stígur 9

Einbýlishús við Tjarnar­stíg 9 á Stokks­eyri hefur verið sett á sölu fyrir 109,9 milljónir króna. Húsið er rúmlega aldar­gamalt, byggt árið 1910, og er skráð 229,8 fermetrar að stærð samkvæmt fasteigna­skrá.

Um er að ræða rúmgóða eign þar sem ýmis eldri einkenni hússins blandast saman við nýlegri innréttingar. Athygli vekur meðal annars mikil lofthæð í borðstofu og stofu, eða um fjórir til fimm metrar.

Í húsinu eru tvö rúmgóð svefn­herbergi, borðstofa, stór stofa og sjónvarps­herbergi, eldhús, búr og baðherbergi. Eldhúsið hefur verið endurnýjað og þar er meðal annars sérsmíðaður skenkur frá Fríform. Baðherbergið er sömuleiðis nýlegt og búið innréttingum frá sama fram­leiðanda.

Þvottahús og anddyri eru með sérsmíðuðum innréttingum og þaðan er útgengt í stóran garð við húsið.

Við eignina er einnig rúmgóður flísa­lagður bílskúr með milli­lofti. Fyrir aftan bílskúrinn hefur verið innréttað sérstakt rými með baðherbergi, salerni og handlaug.

Fram kemur í sölu­lýsingu að lekið hafi inn með hurð bílskúrs síðasta vetur. Talið sé að komið hafi verið í veg fyrir lekann, en skoða þurfi vegg­flísar og hurðir nánar.

Ásett verð eignarinnar er 109,9 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni