Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

„Við sjáum ekki hvernig fjárlögin endurspegla það“

Hilmar Vilberg Gíslason lögfræðingur.
Hilmar Vilberg Gíslason lög­fræð­ingur.

Fram kemur á vefnum bbl.is að framlög til landbúnaðar séu ekki í takti við stefnu ríkisstjórnarinnar.

Segir einnig að á meðan ríkisstjórnin stefnir á eflingu landbúnaðarins á Íslandi; fjölga stoðum hans; treysta fæðuöryggi og mæta skuld­bindingum í loftslagsmálum; ætlar ríkis­stjórnin að lækka fjárframlag í málaflokknum.

Gert er ráð fyrir yfir 700 milljóna króna raun­lækkun fjárframlaga til landbúnaðarins og stoðþjónustu, í fjárlögum fyrir árið 2023:

„Markmið ríkisstjórnarinnar snúa að eflingu innlendrar landbúnaðarframleiðslu með fæðuöryggi að leiðarljósi, en við sjáum ekki hvernig fjárlögin endur­spegla það. Þau standa bara í stað varðandi búvörusamningana en aðrir liðir eru að lækka frekar en hitt,“ segir Hilmar Vilberg Gylfason, sem er lögfræðingur Bænda­samtaka Íslands.

Til að stuðla að sjálfbærari landbúnaði á Íslandi með fæðu- og matvælaöryggi í fyrirrúmi þarf landbúnaðurinn að fá meira pláss í fjárlögum en frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra leggur til, samkvæmt umsögn Bænda­samtaka Íslands.

Bent er á að framlag ríkisins til landbúnaðarins hafi lækkað frá aldamótum á sama tíma og Íslendingum hefur fjölgað talsvert og fram­leiðsla matvæla aukist í takt við þá þróun.

Einnig að þróun á ríkisstuðningi í saman­burði við þróun á framleiðslu­magni og eftir­spurn sýnir að fjárframlag ríkisins hefur lækkað um þriðjung að raunvirði; hefur framlag ríkisins til landbúnaðar sem hlutfall af vergri lands­framleiðslu lækkað um helming frá árinu 2000.

Vilja Bændasamtökin benda á að til að efla landbúnað hér á landi þurfi ríkisstjórnin að gera ráð fyrir frekari fjárframlögum fyrir ákveðin verkefni á kjörtímabilinu.

Lagt er til að föst árleg framlög verði til plöntukynbóta, til innviða­uppbyggingar tengda kornrækt annars vegar og áburðar­framleiðslu hins vegar, sem og framlög til útrýmingar riðu í íslensku sauðfé með innleiðingu á ARR-arfgeninu. Einnig framlög til rannsókna vegna nýrrar nálgunar við afsetningu lífræns úrgangs og framlög til Bjargráðasjóðs/ Náttúruhamfaratrygginga Íslands til þess að bæta áföll í landbúnaðinum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp