Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Skólastjórnin stendur við bakið á Erlu Sigríði: „Við vitum hvað er rétt í þessu líka“

Fyrr í dag birti skóla­meistari Flens­borgarskóla, Erla Sigríður Ragnars­dóttir, yfir­lýsingu varðandi málefni skólans sem hafa verið í fjöl­miðlum að undan­förnu. Ekki eru allir sáttir við yfir­lýsinguna.

Sjá einnig: Erla Sigríður harmar frétta­flutning síðustu daga: „Hvers konar ofbeldis­full hegðun er aldrei liðin“

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum síðustu daga hefur styr staðið um ráðningu Erlu Sigríðar sem skóla­meistara við skólann en samkvæmt nemendaráð skólans sendi, samkvæmt Rúv, erindi til Menntamála­ráðuneytisins og mótmælti ráðningunni og sögðu ekki tekið á ofbeldis- og eineltis­málum í skólanum en nýlega réðust fimm nemendur á tvo nemendur eftir árshátíð nemenda­félagsins í mars. Þá mættu hátt í 80 nemendur ekki í skólann á föstu­daginn í mótmæla­skini. Einnig funduðu nokkrir foreldrar og ræddu ástandið og stóð til að boða fleiri foreldra á fund.

Yfir­lýsingin frá Erlu sýnir að nemendur og skóla­yfirvöld í Flens­borgarskóla eru algjör­lega á öndverðu meiði varðandi þetta mál. Skóla­yfirvöld telja sig taka afar vel á málum sem snúa að ofbeld og einelti og að þolendum í líkams­árásinni hafi verið boðin hjálp.

Mannlíf reyndi að ná tali af Erlu Sigríði sem var upptekin og gat ekki tekið símann. Það gerði hins vegar aðstoðar­skólastjóri Flens­borgarskóla, Júlía Jörgensen. Aðspurð af hverju Erla Sigríður var ein skrifuð fyrir yfir­lýsingunni sagði hún það eðlileg vinnu­brögð. „Skóla­stjórinn er auðvitað ábyrgur fyrir þessu, þetta er ekkert óeðlilegt við þetta. Þetta beinist auðvitað fyrst og fremst að henni en við vissulega stöndum í þessu saman, við í stjórninni. Við stjórn­endur stöndum saman með þessi mál og við vitum hvað er rétt í þessu líka.“

Aðspurð að því af hverju nemendurnir segja allt annað en skóla­stjórnendur í fjöl­miðlum svaraði Júlía því að þetta væri upplifun þeirra á málinu. „Þau eru bara að segja frá sinni upplifun og hún getur bara verið eins og hún er en ég ætla ekki að rengja hana á einn eða neinn hátt.“ Þegar þarna var komið við sögu í samtalinu voru lætin í kringum aðstoðar­skóla­stjórann orðinn slíkur að fljótlega endaði símtalið en Júlía var stödd á körfu­knattleik. Bað hún blaðamann að heyra frekar í skóla­stjóranum en eins og fram kom hér að ofan, gekk það ekki.

Mannlíf ræddi lauslega við einn af nemendum skólans sem hafði kvartað undan skóla­stjórnendum og spurði hann hvað honum fyndist um yfir­lýsingu skóla­stjórans.

„Mér fannst ótrúlega leiðinlegt að sjá þessa yfir­lýsingu og fannst eins og að það væri verið að gera lítið úr minni upplifun í skólanum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur