Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Ísrael framlengir gæsluvarðhald tveggja aðgerðasinna

Saka þá um tengsl við hryðju­verka­sam­tök

Thiago Avila
Thiago Avila Avila sýnir frið­ar­merkið í rétt­ar­salnum Mynd: ILIA YEFIMOVICH / AFP

Ísra­elskur dóm­stóll hefur fram­lengt gæslu­varð­haldi yfir tveimur aðgerðasinnum sem voru hand­teknir um borð í hjálp­ar­skipa­flota á leið til Gaza, sem stöðvuð var af ísra­elskum her­sveitum á alþjóð­legu haf­svæði nærri Grikk­landi á dög­unum.

Um er að ræða Saif Abu Keshek, spænskan rík­is­borg­ara, og Bras­il­íu­mann­inn Thiago Avila, sem voru hand­teknir af ísra­elskum yfir­völdum 29. apríl og fluttir til Ísraels. Yfir 100 aðrir stuðn­ings­menn Palest­ínu sem voru um borð í skip­unum voru hins vegar fluttir til grísku eyj­unnar Krít.

Gæslu­varð­hald þeirra hafði upp­haf­lega verið fram­lengt til 5. maí, en dóm­stóll í Ashkelon hefur nú fram­lengt það til 10. maí.

Aðgerða­sinn­arnir voru hluti af svoköll­uðum Global Sumud-flota sem hafði það mark­mið að rjúfa hafn­bann Ísraels á Gaza með því að flytja þangað mann­úð­ar­að­stoð. Skipin lögðu af stað frá Barcelona 12. apríl.

Í dóm­skjölum kemur fram að Ísrael sakar þá Abu Keshek og Avila um brot, þar á meðal aðstoð við óvin­inn, sam­skipti við erlendan útsend­ara og hryðju­verka­sam­tök, ólög­legt athæfi sem felur í sér hryðju­verka­starf­semi og að útvega hryðju­verka­sam­tökum fjár­muni.

Dómarinn Yaniv Ben-Haroush sagði að „rök­studdur grunur“ væri fyrir hendi þegar hann sam­þykkti fram­leng­ingu gæslu­varð­halds­ins.

Tilhæfulausar ásakanir

Lögmenn mann­rétt­inda­sam­tak­anna Adalah mót­mæltu hins vegar og sögðu ásak­an­irnar til­hæfu­lausar og að engin laga­leg rök væru fyrir áfram­hald­andi varð­haldi mann­anna. Þeir bentu á að engar form­legar ákærur hefðu verið lagðar fram og að varð­haldið væri ein­göngu vegna yfir­heyrslna.

Samtökin sögð­ust ætla að áfrýja ákvörð­un­inni og krefj­ast taf­ar­lausrar og skil­yrð­is­lausrar lausnar mann­anna. Þau full­yrtu einnig að menn­irnir hefðu verið beittir pynt­ingum í haldi, en Ísrael hafnar þeim ásök­unum.

Eig­in­kona Abu Keshek, Sally Issa, sagði í sam­tali við Reuters 5. maí að hún hefði ekki fengið að tala beint við mann sinn frá hand­töku og byggði upp­lýs­ingar sínar á sam­skiptum við spænska ræð­is­mann­inn og lög­menn.

„Þau hafa sagt okkur að hann sé í góðu ástandi. Hann er í hung­ur­verk­falli,“ sagði hún. „En hann er í lagi. Hann varð fyrir pynt­ingum um borð í skip­inu þegar Ísraelar réð­ust á hann.“

Spánn krefst lausnar

Utan­rík­is­ráðu­neyti Ísraels hefur sagt að menn­irnir teng­ist palest­ínsku sam­tök­unum Hamas og að flot­inn sé „enn ein ögrunin sem ætlað er að beina athygl­inni frá því að Hamas neiti að afvopn­ast“.

Tals­maður ráðu­neyt­is­ins hafn­aði ásök­unum um pynt­ingar og kall­aði þær „rangar og til­hæfu­lausar“.

„Eftir að Saif Abu Keshek og Thiago Avila beittu lík­am­legu ofbeldi gegn starfs­mönnum Ísraels neydd­ust þeir til að grípa til aðgerða til að stöðva það. Allar aðgerðir voru í sam­ræmi við lög,“ sagði hann.

Spænski utan­rík­is­ráð­herr­ann Jose Manuel Albares krafð­ist taf­ar­lausrar lausnar Abu Keshek og sagði engin gögn benda til tengsla hans við Hamas.

Albares sagð­ist hafa sagt ísra­elska starfs­bróður sínum, Gideon Saar, að varð­hald aðgerða­sinn­anna væri ólög­legt þar sem Ísrael hefði ekki lög­sögu á alþjóð­legum haf­svæðum.

Eig­in­kona Avila, Lara Souza, sagði að maður hennar væri á sjötta degi hung­ur­verk­falls og undir eft­ir­liti lækna.

„Hann er skárri af meiðsl­unum, en mjög veik­burða, og sendi­ráðið hefur miklar áhyggjur,“ sagði hún.

Vegna hung­ur­verk­falls­ins fyr­ir­skip­aði dóm­stóll­inn fang­els­is­yf­ir­völdum í Ísrael að fylgj­ast náið með heilsu­fari fang­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Hann var 21 árs og hafði vakið athygli fyrir áhættusamar flugæfingar
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael