Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Finneas rífur yfirvöld í Bandaríkjunum í sig eftir morðið á Petti

„Grjót­haldið kjafti!“

Finneas
Finneas Hinum marg­verð­laun­aða tón­list­ar­manni er mikið nið­ur­fyrir Mynd: Shutterstock

Tónlistar­maðurinn og bróðir Billie Eilish, Finneas lét hörð orð falla í TikTok-myndbandi eftir að Alex Pretti, 37 ára hjúkrunar­fræðingur, var skotinn til bana af fulltrúum ICE í Minneapolis á laugar­daginn. Í mynd­bandinu tengir Finneas dauða Pretti beint við lang­varandi umræðu um vopna­löggjöf í Banda­ríkjunum og þá röksemda­færslu sem hann segir hafa verið notaða til að réttlæta bæði skot­árásir í skólum og banaskot lögreglu.

Hann segir Bandaríkja­menn hafa lifað við linnulausar skot­árásir í áratugi:

„Við höfum öll búið í Banda­ríkjunum í gegnum bókstaf­lega óteljandi skot­árásir í skólum. Skotárás eftir skotárás eftir skotárás eftir skotárás.“

Finneas segir íhalds­sama afstöðu til vopna hafa gert þetta mögulegt:

„Íhalds­rökin sem leyfa skot­árásir í skólum að halda áfram hafa alltaf í grunninn verið þetta: við verðum að verja annað breytingar­ákvæðið, við verðum að leyfa fólki að bera vopn, við verðum að leyfa fólki að eiga og bera vopn löglega.“

Og bætir við:

„Og, já, einhver smábörn deyja, það er í lagi með þau. Alveg ógeðsleg rök, svo það sé sagt.“

Finneas segir sömu rök nú notuð til að réttlæta dauða Alex Pretti:

„Öll rök sem ég hef séð fyrir því að dauði Alex Pretti í gær hafi verið réttlætanlegur eru svona: ja, hann var með byssu.“

Hann svarar því með skýrum hætti:

„Grjót­haldið kjafti!“

Finneas segir gagn­rýnendur hafa í áratugi samþykkt dauða barna til að viðhalda vopna­frelsi:

„Þið hafið eytt 30 árum í röð í að segja okkur að börn verði að deyja svo við megum bera vopn löglega alls staðar.“

Hann lýsir atburða­rásinni eins og hún blasti við öllum sem sáum mynd­böndin af andláti Petti:

„Þetta gerist alls staðar í Banda­ríkjunum. Þessi maður var barinn í klessu á jörðinni. Hann dró ekki upp vopnið sitt.“

Og heldur áfram:

„Hann var með vopn á sér löglega, og þeir skutu hann í tætlur og drápu hann. Svo grjót­haldið kafti!“

Að lokum segir Finneas að andstaða við núverandi vopna­löggjöf hafi verið skýr í áratugi:

„Við höfum sagt ykkur í 30 ár að við teljum ekki að fólk eigi að mega hafa jafn mörg vopn og það má hafa eða bera þau löglega um Banda­ríkin.“

Og bætir við:

„Þið hafið sagt okkur að þetta verði að halda áfram. Börn verði að halda áfram að deyja svo við megum bera byssur. Þannig að steinhaldiði kjafti!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi