Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ófremdarástandið á húsnæðismarkaðnum versnar enn: „Má helst líkja við „villta vestrið“ hér í den“

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Óhætt er að fullyrða að algjört ófremdar­ástand ríki, eins og svo oft áður, á íbúða­markaði hér á landi.

Eins og staðan er í dag hafa íbúðir sem auglýstar eru til sölu á höfuð­borgar­svæðinu aldrei nokkurn tímann selst eins hratt, en það herma margar öruggar heimildir Mannlífs innan fasteigna­markaðarins.

Fjölmörg dæmi er að finna þar sem fólk allt að því slæst um íbúðir og yfirboð eru á hverjum degi í auglýstum fasteignum til sölu.

Áður­nefndur fasteigna­sali sagði í samtali við Mannlíf að „orrustan um íbúðirnar er í fullum gangi og ég get nefnt sem dæmi að þeir fasteigna­kaupendur sem kíktu við á opið hús nýlega, var ekki skemmt, enda gríðar­lega margir vongóðir kaupendur um nánast hverja einustu íbúð hér á landi sem skráð er á sölu; sem þýðir að til að hreppa hnossið þarf fólk klárlega að yfirbjóða mjög hressilega ætli það sér að næla í íbúð. Þessu má helst líkja við „villta vestrið“ hér í den; og það var nú ekki gott ástand. Það er bara þannig að stjórn­völd, ríki og bær, verða að byggja mikið og verða að byggja hratt, en samt vanda til verka.“

Slíkt ástand eins og nú ríkir á Íslandi veldur eðlilega mikilli hækkun íbúðar­verðs, sem var fyrir að flestra mati alltof hátt. Og nú er að myndast flösku­háls og samkvæmt fasteigna­sölum er eina ráðið gegn honum að byggja fleiri íbúðir til sölu og/eða leigu.

Framboð íbúða er sorglega lítið og oft bitist um íbúðir á sölu, eins og áður var nefnt.

Á höfuð­borgar­svæðinu í mars á þessu ári var meðal­kaupverð um það bil 10 milljónum króna hærra en á sama tíma í fyrra – og þetta er veruleg hækkun fyrir almúgann í landinu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra skipaði starfs­hópur sem hefur nú lagt til að á næsta áratug verði byggðar 35 þúsund íbúðir til þess eins að mæta hinni gífurlegu eftir­spurn og laga hina hræðilegu stöðu sem er á húsnæðis­markaðnum á Íslandi í dag.

Það fólk sem er að berjast með kjafti og klóm og hefur unnið myrkranna á milli til þess að komast í góða íbúð verður því að bíða þolinmótt í nokkuð langan tíma, sem er ekki eftirsóknar­vert; því leigu­markaðurinn er nánast eins og í er mjög óáreiðanlegur og nánast ómögulegt að finna íbúð á höfuð­borgar­svæðinu þar sem boðið er upp á lang­tímaleigu sem er örugg og leiguverð sann­gjarnt; þar er mánaðar­leiga leiga miklu hærri en sem nemur mánaðar­legum afborgunum af íbúð, já og öryggið víða minna en ekki neitt.

Því er ekki óeðlilegt að margir vilji festa kaup á íbúð; eiga fyrir góðri útborgun og stóðust greiðslumat með glans. Þetta fólk er með allt til íbúða­kaupa klappað og klárt en vegna ömurlegs ástands á húsnæðis­markaðinum nær mikill minni­hluti fólks að kaupa íbúð, því yfirboðin á hverja einustu íbúð eru mörg og alls ekki allir sem ráða við þau.

Eins og staðan er nú, er gríðar­lega mikill skortur á íbúðum, og þá sérstak­lega á höfuð­borgar­svæðinu; margir vongóðir kaupendur sem hafa leitað lengi að nýju heimili þurfa því að bíða enn um stund. Og jafnvel töluvert lengur en það, eða leita til nokkuð nálægra sveita­félaga þar sem íbúðaverð er mun lægra og framboð oft með ágætum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá